Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 136
140
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Starfsmenn safnsins koma oft fram í fjölmiðlum, bæði í fréttum svo og flytja þeir margs
konar fyrirlestra og fræðsluerindi á opinberum vettvangi og annars staðar og starfa í nefndum
um mál sem tengjast þjóðminjavörzlunni. Nefna má, að Þóra Kristjánsdóttir var framkvæmda-
stjóri „Kirkjulistarhátíðar í Reykjavík 1995" sem var í Hallgrímskirkju 3.-18. júní.
Starfsmenn safnsins, Guðrún Fjóla Granz, Lilja Arnadóttir, Sigrún Ásta Jónsdóttir og Þóra
Kristjánsdóttir sóttu ráðstefnu Alþjóðaráðs safna ICOM í Stafangri 2.-8. júlí. Slíkar heims-
ráðstefnur eru haldnar á þriggja ára fresti og að þessu sinni var aðalefnið Söfn og samfélag.
Silfursjóðurinn frá Miðhúsum var mjög til umræðu, en fyrir beiðni menntamálaráðu-
neytis lét þjóðminjaráð senda hann til Danmerkur til rannsóknar, svo sem getið var í skýrslu
sl. árs. Kom sjóðurinn aftur frá Danmörku 27. júní ásamt skýrslu Þjóðminjasafns Dana. Var
þá skýrt frá niðurstöðu rannsóknarinnar á fréttamannafundi þar sem niðurstaða Dananna
er, að sjóðurinn sé vissulega frá víkingaöld, þó yfirborð eins gripanna sé þannig að vafi geti
leikið á því hvenær hann hefur verið gerður. Silfrið er þó hið sama og í öðrum hlutum sjóðs-
ins. Síðan varð mikil umfjöllun fjölmiðla um málið, sem ekki var séð fyrir endann á um ára-
mót.
Húsnæðis- og byggingamál safnsins eru í höndum byggingarnefndar. Enn er óvíst um
framtíðarskipan húsnæðismála, en ákveðið er þó að kanna kaup handa safninu á nærliggj-
andi húsum, Jarðfræðahúsi Háskóla íslands, Gamla-Garði og húsi Félagsstofnunar stúdenta.
(Ath. Kaflinn um safnstörfin er að mestu saminn af Lilju Árnadóttur safnstjóra).
Ritaskrá starfsmanna safnsins
Árni Björnsson: „High days and Holidays in Iceland". Reykjavík 1995.
Sami: „Veisluglaðir prentstjórar". Prentarinn, des. 1995.
Halldór J. Jónsson: „Mannamyndir íslenskra listamanna frá 17. -19. öld. (Fjölrituð sýningar-
skrá vegna sýningar í Bogasal).
Halldór J. Jónsson og Inga Lára Baldvinsdóttir: „Skrá yfir filmu- og plötusöfn í Þjóðminjasafni
Islands". (Ljósrituð skrá).
Hallgerður Gísladóttir: „Forskot á jólin". Heima er best, des. 1995.
Inga Lára Baldvinsdóttir: „Hlutverk byggðasafna". Goðasteinn 5. árg. 1994.
Sama: „Stereóskópmyndir frá Islandi". Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1994.
Sama: „Oþekktar myndir frá myndastofu Bjarna Kristins Eyjólfssonar". (Ljósrituð sýning-
arskrá).
Þór Magnússon: „Um byggðasöfnin í landinu." Goðasteinn 5. árg. 1994.
Sami: „Varðveizla fornmerkra kirkjugripa." Orðið, 1995.
Þóra Kristjánsdóttir: „Kvöldmáltíð að Stóra-Ási". Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1994.
Safnauki. Færðar voru alls 86 færslur í aðfangabók safnsins. Oft eru margir munir í sömu
færslu, en samtals voru skráð 356 númer á árinu. Meðal sérstakra gripa sem bárust á árinu má
nefna kertapípu, að líkindum úr Kolbeinsstaðakirkju, stafaklút frá 1858, gef. Ella Kolbrún Kristins-
dóttir, R., kort af Reykjavík 1836 (keypt), verðlaunapening Sigurjóns Egilssonar úrsmiðs ásamt
heiðursskjali fyrir sveinsstykki í úrsmíði í Kaupmannahöfn 1933, sveinsbréf hans og fleira tengt
námi hans, gef. Jóhannes Egilsson, R., pípuhatt Sveins Björnssonar forseta, gef. Birgir
Thorlacius fv. ráðuneytisstj., altarisdúk, hökul, rykkilín og altarisklæði frá Melgraseyrarbænhúsi
við Djúp, píanó Péturs Guðjónssonar organista og söngstjóra er nemendur hans gáfu honum
1855, gef. Marta Thors o. fl. ættingjar og afkomendur hans, haugfé úr kumli manns og hests við
Þórisá hjá Eyrarteigi í Skriðdal, forna klukku eða bjöllu, sem fannst á Narfastöðum í Reykjadal,
gef. Ingi Tryggvason, Narfastöðum, svuntupör úr silfri eftir Jón Guðmundsson í Ljárskógum og
gullsmíðasteðja og hamar úr eigu hans, gef. Regína Hallgrímsdóttir, R., rörtöng smíðaða af Gísla
Finnssyni járnsmið í Reykjavík, gef. Marteinn Sigurðsson, Gilá.
Myndadeild. Auk Ingu Láru Baldvinsdóttur deildarstjóra starfar ívar Brynjólfsson ljósmynd-
ari fastráðinn við deildina og Halldór J. Jónsson fyrrum deildarstjóri vann í hlutastarfi, en einn-