Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Blaðsíða 113
KIRKJA OG KIRKJUGARÐUR í NESI VIÐ SELTJÖRN
117
ir (9,4 m), Lambastaðir 27 álnir (16,9 m), Eiði 12 álnir (7,5 m), Mýrarhús 9
álnir (5,6 m) og Bygggarður 24 álnir (15,1 m). Þá var ákveðið að garðurinn
skyldi allur hlaðinn upp af grjóti þar sem gott lrleðslutorf fengist ekki í land-
areign kirkjunnar.67
Eftir þetta er ekkert minnst á kirkjugarðinn fyrr en í biskupsvísitatíu 1791
en þá hafði garðurinn verið uppbyggður af grjóti vestanmegin og í útsuður
en var annars allur sokkinn.68 Það lítur því út sem Neshverfingar hafi staðið
sína plikt að mestu en aðrir bændur í sókninni ekki sinnt fortölum biskupa
eða prófasta.
Á kirkjugarðinn er ekki minnst oftar og er meira en líklegt að aldrei hafi
verið hlaðið meira af hinum nýja grjótgarði en það sem komið var 1791 þó
að þögnin um kirkjugarðinn í vísitatíum prófasts 1795 og 1796 gæti bent til
að búið hafi verið að hlaða upp allan garðinn og því ekki ástæða til að minn-
ast á hann frekar.
Af þessu yfirliti má ráða að austur- og norðurhliðar kirkjugarðsins hafi
verið hlaðnar upp um 1750 og að einhverjar viðgerðir hafi verið gerðar á
kirkjugarðsveggnum á árunum 1762-69. Óvíst er þó t.d. hvort nokkuð hafi
verið átt við vesturhliðina fyrr en hún og vesturhluti suðurlaliðar voru hlaðn-
ar upp á árunum 1787-91. Garðurinn hafði verið talinn of lítill 1780 og
biskup þá skipað að hann yrði stækkaður en ekki verður af úrskurðinum frá
1787 ráðið hvort gamli garðurinn hafði verið 192 álnir eða lrvort sú mæling
miðaði við útvíkkaðan garð.
Samantekt
Þó að ekki hafi verið hægt að rannsaka tóftina inni á lóðinni Neströð 7
verður eftir rannsóknirnar sumarið 1995 ekki efast um að þar sé grunnur
Neskirkju. Grafir hafa nú komið í ljós á þremur stöðum í kringum þessa tóft
og þar sem ekki er vitað til að aðrar byggingar hafi staðið á þessum stað síð-
astliðnar tvær aldir kemur vart annað til greina en að tóftin sé eftir kirkj-
una. Ekki var hægt að tímasetja grafirnar sem komu í ljós í hitaveituskurð-
inum 1979 og 1994, né þær sem komu í ljós syðst í garðinum 1980 en graf-
irnar sem komu í ljós í skurði ND eru örugglega eldri en frá síðasta fjórð-
ungi 18. aldar og það bendir til að eldri kirkjan, sú sem byggð var 1675, hafi
staðið á svipuðum slóðum. Ekkert verður hinsvegar sagt um staðsetningu
eldri kirkna í Nesi að svo búnu.
I skurði ND komu í ljós tveir veggir og er eðlilegast að túlka þá sem
kirkjugarðsveggi. Báðir hafa sömu stefnu og grafirnar og ekld eru miklar
líkur á öðrum mannvirkjum á þessum stað. Veggurinn nr. 7-9 er að því er
virðist yngri en grafirnar, sem fundust fast austan við hann, og þær eru á
hinn bóginn ekki afargamlar, varla eldri en frá 17. öld. Það er því líklegt að