Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 105

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 105
KIRKJA OG KIRKJUGARÐUR í NESI VIÐ SELTJÖRN 109 urnar eru eldri en veggurinn nr. 7-9 en sennilega allar frá sama tímabili og sú með upphækkaða kistulokinu er tæplega eldri en frá fyrri hluta 18. aldar. Sennilegasta túlkunin á þessum leifum er því sú að elstu kisturnar geti ekki verið eldri en frá seinni hluta 17. aldar, flestar sennilega frá fyrri hluta 18. aldar nema kannski holrýmið sem gæti verið yngra en veggurinn nr. 7-9 sem er þá frá miðbiki 18. aldar. Þegar grafið var niður milli nr. 3 og nr. 9 var undir torfblandlaginu nr. 10 komið niður á allþykkt (0,5-0,6 m) lag af þéttri grábrúnni leirblandaðri mold (11) . Það hefur hlaðist upp á löngum tíma en allan þann tíma úr einsleitu efni með torf- og sótlinsum, sem tengist frekar mannaferð heima við bæ en kirkjugarð. Undir þessu lagi vestantil var komið niður á bleikt og hart móöskulag (12) , sem er greinilega öskuhaugur frá bæjarhúsum í Nesi. Austan við þetta lag er grjótlögn (21), sem lá þvert á skurðinn. Aðeins tvö umför af steinum eru eftir í grjótlögn þessari og eru steinarnir ekki þykkir og frekar flatir. Steinarnir eru í ljósari mold en finnst í lögunum til beggja hliða. Líklegt er að þetta sé grjótveggur af svipaðri gerð og nr. 3 en ekki er óhugsandi að um illa lagða stétt sé að ræða. Ef svo er þá hefur verið bætt í hana steinum smátt og smátt eftir því sem hún sökk í drulluna, sem þarna hefur verið. Grjót- lögnin nr. 21 hefur lítillega aðra stefnu en grafirnar nr. 13-19, veggurinn og stéttin nr. 7-9 og grjótgarðurinn nr. 3, en það munar þó ekki svo miklu að það útiloki að lögn þessi standi í samhengi við kirkjugarðinn. Hinsvegar er hún á svo miklu dýpi að hún hlýtur að vera miklu eldri en grafirnar sem sá- ust í skurðinum. Vestan við grjótlögnina nr. 21, undir nr. 11 og nr. 12 er kolsvart en mjög mjúkt lag (20). Það er úr svipaðri blöndu af mold og leir og nr. 11 en með miklu meira af kolum og sóti, sem hafa litað lagið. Ekki fundust neinir gripir í laginu. Lag þetta hefur öll einkenni gólfs önnur en hvað það er mjúkt og verður að telja líklegt að það hafi orðið til í nánd við eldstæði. Austan við grjótlögnina nr. 21 er sambærilegt lag en að mestu án eldsmerkja (22). Lausafundir. Alls komu í ljós við uppgröftinn 541 gripur fyrir utan dýra- bein. Langflestir, eða 474, fundust í efstu lögunum nr. 1-2 og 4. Fundasafnið er í heild af venjulegasta tagi og engir gripir fundust, sem teljast geta sér- staklega markverðir. Samsetning fundasafnsins er dæmigerð fyrir tilvilj- anakennda dreifingu rusls í hlaði og kringum bæjarhús. Megnið af gripun- um er af allra venjulegasta tagi frá 18. og 19. öld. Mjög lítið var af gripum frá 20. öld og bendir það til að mjög hafi dregið úr umsvifum á þessu svæði einhverntíma á 19. öld. Hæst hlutfall af lausafundum á m3 var vestast í skurðinum og minnkaði síðan jafnt eftir því sem austar dró, fyrir utan nr. 8 þar sem hlutfallið var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.