Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 119
BJARNI F. EINARSSON
„Það er svp bágt að standa í stað"
(Ur kvæðinu Island eftir Jónas Hallgrímsscni)
Eftirfarandi ritgerð er svar mitt við ritdómi Guðrúnar Sveinbjarnardóttur um
doktorsritgerð mína "The Settlement of Iceland; a Critical Approacli. Granastaðir
and the Ecological Heritage". GOTARC Series B. Gothenburg Archaeological Theses.
No 4. Gothenburg University. Dept. of Archaeology 1994.
Ég mun einbeita mér að vissum þáttum ritdómsins og sneiða hjá öðrum,
sem eðli málsins samkvæmt eru varla til umræðu.
Ég reyni eftir föngum að sleppa smáatriðum, hversu hvimleið sem þau
kunna að vera. Þó eru nokkur, sem ég get ekki alveg leitt hjá mér.
Undir lok greinarinnar mun ég fjalla um reykhúsið að Granastöðum,
Hús 9B, sem Guðrún telur vera annarskonar hús en ég hygg vera.
Guðrún er ekki hrifin af þýðingunni og telur hana beinlínis klaufalega
(bls. 191). Þess ber að geta að bókin er fyrst skrifuð á sænsku en síðan þýdd
yfir á ensku. Þýðandinn er bandarískur fornleifafræðingur og rithöfundur
og vann hjá bókaforlagi sem ritstjóri þegar bókin var þýdd (1992-1993).
Sú staðreynd að Guðrún skuli oft ekki skilja hvað við er átt kemur nokk-
uð á óvart. Tvö atriði nefnir hún sérstaklega (bls. 191) og finnst mér þó að
hvorugt ætti að vefjast fyrir nokkrum manni, sé hann á annað borð sæmi-
lega fær í enskri tungu; og ekki vöfðust þessi atriði fyrir prófessori mínum,
einkunnarnefnd né andmælanda.
En hafi Guðrún ekki botnað í textanum, skil ég að henni hafi þótt úr
vöndu að ráða. Hún hefur því valið þann kostinn að staðhæfa: „Flest það
sem tekið erjyrir er rætt yfirborðslega, heimildanotkun er ónákvæm og oft er óvissa
um hver eiginleg afstaða höfundar er. Hvergi er kafað djúpt og ýmsu haldiðfram án
fullnægjandi rökstuðnings. Oftar en einu sinnifer röksemdafærslan í hringi. Marg-
oft er vitnað íalls konar kenningar í mannfræði og fornleifafræðiritum, en efnið sem
greina á er lítið sem ekkert sett í samband við þessar kenningar." (Bls. 186). Þessi
orð og álit Guðrúnar eru með eindæmum.