Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 121
SVAR VIÐ RITDOMI
125
hvert aukið vægi, heldur er verið að setja staðina í samhengi við nútímann
og ekkert annað. Eins og fram kemur í bók minni hef ég ekki trú á því að
Grani Hrólfsson hafi búið að Granastöðum, heldur sé nafnið til komið á
síðustu öld, vegna þess að einhver las Reykdælu og þar er býlisins
Granastaða á Eyjafjarðardal getið. Býlið hefur þá heitið Granastaðir í rúm
100 ár, og ég finn ekki hjá mér neina hvöt til að breyta því.
Og enn reynir Guðrún að gera sér mat úr því sem ekkert er, þegar hún
víkur að munnmælasögum þess efnis, „að Granastaðir hafifarið í eyði íþví sem
hann nefnir svarta dauða árið 1402. Pest sú sem herjaði á Islandi á árunum 1402-4
er hinsvegar nefnd plágan mikla í samtímaheimildum en svarti dauði í seinni tíma
heimildum, og ekki er talið að um sömu pest sé að ræða oggekk undir nafninu svarti
dauði á meginlandi Evrópu um miðja 14. öld." (Bls. 187).
Þessar aðfinnslur Guðrúnar eru vægast sagt þokukenndar, auk þess sem
þær eru villandi. Hún gefur í skyn, að ég hafi valið þessa nafngift, svarti
dauði, og lætur svo í það skína, að það sé fremur ónákvæm nafngift.
En ég valdi ekki þessa nafngift, heldur var ég aðeins að vísa í munnmælin,
með því orðalagi sem þau viðhafa. Guðrúnu til upplýsingar má svo geta
þess, að þeir Björn Þorsteinsson og Bergsteinn Jónsson segja fullum feturn
(Islandssaga til okkar daga; Reykjavík 1991): „...en Plágan mikla hefur einnig
verið nefnd Svarti dauði". (Bls. 149). Og Hannes Þorsteinsson kallar hana sama
nafni í skýringum við Skarðsárannál. (Annálar 1400-1800; 1,1. Rvk. 1922: 49).
Að kalla þennan sjúkdóm pláguna, er komið úr ensku, segja þeir Björn og
Bergsteinn.
Vitaskuld eru nafngiftir þessar aukaatriði, en það er undravert hvernig
Guðrún reynir að nýta sér þær til að gera skrif mín tortryggileg.
Um „Ecological heritage"
Um heitanotkun mína í fyrsta hluta bókarinnar segir Guðrún eftirfar-
andi: „Heitið 'ecological heritage' er notað í bókinni til skilgreiningar á því aðfólk
velji sér stað til búsetu sem er líkur þeim stað sem það flytur frá. Þetta er óheppilegt
heiti. Enska orðið 'ecology' hefur merkinguna 'vistfræði' og orðið 'heritage' gefur í
skyn arf sem þarf að varðveita. 1 kaflanum er hins vegar aðeins fjallað um landa-
fræði, loftslag og gróður og samanburður gerður milli svæða í þeim tilgangi að sýna
fram á, samkvæmt fyrrgreindri skilgreiningu, hvaðan líklegast er að landnáms-
menn í Eyjafirði hafi komið. Nær hefði verið að nota t. d. orðin 'landscape, veget-
ation and climatic background'.“ (Bls. 185).
Þessi tilvitnun sýnir að Guðrún er ekki nógu vel heima í vistfræðilegri
umræðu í hugvísindum yfirleitt, því vissulega eru þessi heiti notuð þar, þó
að þau eigi uppruna sinn að rekja til náttúruvísinda.