Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Page 133
ÞJOÐMINJASAFN ISLANDS
Arsskýrsla 1995
I’jóðminjaráð. Ráðið var skipað eins og getur í skýrslu fyrra árs. Það hélt 13 fundi á árinu
og var meðal annars fjallað um nýtt stjómskipulag og stefnumörkun Þjóðminjasafns og þjóð-
minjavörzlunnar, lán safngripa til útlanda, starfsmannaráðningar, fornleifaskráningu, sýn-
ingar, fjármál og mál er snertu silfursjóðinn frá Miðhúsum.
Almennt um safnstörfin
Starfsmenn
Fastir starfsmenn safnsins voru sömu og áður. Iris Rán Þorleifsdóttir fulltrúi fékk barns-
burðarleyfi frá 27. des. og var Helga Pálina Sigurðardóttir ráðin tímabundið í hennar stað.
Inga Lára Baldvinsdóttír var ráðin áfram í stöðu deildarstjóra myndadeildar tíl fimm ára.
Bjarni F. Einarsson var ráðinn frá 1. nóvember til undirbúningsvinnu fornleifaskráningar.
Agúst Georgsson tók við starfi safnvarðar við Sjóminjasafnið af Jóni Allanssyni, svo sem
getið verður þar.
1 ársbyrjun þegar sýningunni „Leiðin til lýðveldis" hafði verið lokað í Aðalstrætí 6 var
ákveðið að semja við gæslukonur um að taka að sér önnur störf meðan safnið væri lokað.
Unnu þær að mestum hluta fram í maí ýmis störf í myndadeild en einnig tóku þær þátt í und-
irbúningi fyrir opnun safnsins.
Á árinu 1994 var haldið starfsmenntanámskeið fyrir gæslufólk safna. Var námskeiðið haldið
að frumkvæði Körlu Kristjánsdóttur á Listasafni Islands og safnstjóra. Höfðu þær alla umsjá
með höndum, önnuðust kennslu að hluta. Samtals voru námskeiðin þrjú og hétu þau Gæsla -
öryggi - þjónusta, tvö grunnnámskeið sem hvort um sig var 60 stundir og framhaldsnámskeið
80 stundir. Námskeiðin sótti gæslufólk flestra safna á höfuðborgarsvæðinu, um 30 manns.
Markmiðið var að fræða gæslufólk um eðli og starfsemi safnanna auk þess sem þátttaka starfs-
mannanna í þeim veittí launahækkun sem nam einum launaflokki fyrir hvert námskeið.
Starfsmenntasjóður félagsmálaráðuneytis veitti styrk tíl námskeiðahaldsins en Starfsmanna-
félag ríksstofnana fylgdist með því. Haustið 1995 hófst framhaldsnámskeiðið og var áætlað að
ljúka því á vorönn 1996.
Safnstörfin
Framkvæmdir við safnhúsið settu mark sitt á starfsemi safnsins á árinu. Viðgerðir hófust á
ytra borði árið áður og lauk þeim ekki fyrr en komið var fram á árið 1995. Ákveðið var að opna
sýningar í maímánuði en einungis var unnt að opna að hluta á aðalhæð þar sem frágangi á
gluggum að innan var ekki lokið. Þá var ákveðið að opna ekki aftur sýningu á jarðhæð þar eð
nauðsynlegt reyndist að taka það húsnæði undir geymslu og vinnusvæði. Er það til marks um
hversu brýn þörf er á auknu rými fyrir starfsemi safnsins, bæði til innra starfs og tíl sýninga-
halds.
Vegna viðgerðar hússins var miklu af safngripum pakkað niður einkum þeim sem voru
geymdir á aðalhæð safnsins. Framan af ári fór mikill tími starfsfólks í það verk og um leið var
farið yfir safnskrár og gerð eins konar birgðakönnun. Jarðfundnum gripum sem ekki voru
valdir til sýningar var komið fyrir í geymslu á jarðhæð þar sem áður var geymt Ásbúðarsafn.
Sýningar þær sem opnaðar voru áttu að vera til bráðabirgða en ekki þótti viðunandi að hafa
safnið lokað áfram þar sem ekki hafði verið tekin ákvörðun um húsnæðismál safnsins tíl