Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 134
138
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
framtíðar. Áætíað var að loka sýningum aftur um haustið en það var ekki gert. Verður nú gerð
grein fyrir þeim sýningum sem opnaðar voru: Sýning í fornaldarsal var endurnýjuð að veru-
legu leyti þó ekki væri ráðist í breytingar á skápum nema hvað þeir voru málaðir og klæddir
að nýju. Þá var lýsing lagfærð lítils háttar í salnum. Vefjar- og amtmannsstofur héldust að
miklu leyti óbreyttar, þó var endurgerður sýningarskápur á milli þeirra. Framan við baðstofu
var sett upp sýning um matargerð og matarvenjur auk þess sem þar er fjallað stuttlega um
íslenska torfbæinn. I kirkjudeildum var safngripum raðað upp á nýtt að vissu marki en mest
varð breyting í Péturskirkju þar sem íslenskum kirkjugripum var komið fyrir á nýjan leik. Hins
vegar varð að loka bæði safni Jóns Sigurðssonar og Vídalínssafni og í þeim stofum eru nú
geymslur til bráðabirgða. Öll sýningargerðin var í höndum starfsmanna safnsins nema hvað
smiðir unnu um tíma við lagfæringu skápa og uppsetningu muna.
Sérsýningar
Myndadeild setti upp sýningu í Bogasal á óþekktum myndum Bjarna Kristins Eyjólfssonar
ljósmyndara sem stóð 8.-21. júní. Slíkar sýningar eru settar upp í þvi augnamiði að leita eftir
upplýsingum safngesta um myndefnið. Þær auka gildi myndasafnanna þegar vel tekst til og á
þessari reyndist unnt að greina nokkurn hluta myndanna.
Á Þjóðminjadaginn 9. júlí var opnuð sýningin Mannamyndir íslenskra listamanna frá 17. -19.
öld í Bogasal að viðstöddum menntamálaráðherra. Á henni gat að líta valdar myndir sem lang-
flestar eru í eigu Þjóðminjasafns en Listasafn Islands lánaði nokkrar myndir á sýninguna eftir
Helga Sigurðsson. Inga Lára Baldvinsdóttir, Halldór J. Jónsson, Margrét Gísladóttir og Árni
Guðmundsson unnu að gerð sýningarinnar en Steinþór Sigurðsson listmálari hannaði hana.
Sýningin stóð til októberloka.
1. desember var opnuð jólasýning safnsins í Bogasal sem að þessu sinni bar heitið Jólaljós.
Þar var gerð grein fyrir ljósanotkun við jólahald, allt frá tólgarkertum til aðventukransa og að-
ventuljósa nútímans. Safnið auglýsti í október eftir jólaljósum í fjölmiðlum og barst talsvert af
þess háttar efni til safnsins, bæði fengnu að láni og eins voru safninu færð að gjöf ýmis ljós og
ljósaseríur. I Bogasal var einnig komið fyrir jóladagatali þar sem íslensku jólasveinarnir þrettán
voru í aðalhlutverki. Vakti dagatalið rnikla hrifingu barna á öllum aldri. Margrét Gísladóttir og
Lilja Árnadóttir sáu um gerð sýningarinnar og nutu við það aðstoðar Gróu Finnsdóttur, Árna
Guðmundssonar, starfsfólks myndadeildar og Árna Björnssonar sem gerði sýningartexta. Á
Nikulásarmessu var samkoma í forsal safnsins þar sem boðið var vinum og velunnurum safns-
ins. Við það tækifæri kveikti menntamálaráðherra Björn Bjarnason á jólatrénu sem að þessu
sinni var skreytt útskornum piparkökum. Óskaði menntamálaráðherra og kona hans Rut
Ingólfsdóttir eftir því að tréð fengi þann búning. Við athöfnina söng bamakór Grensáskirkju
nokkur lög undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Islensku jólasveinarnir heimsóttu safnið
dagana fyrir jólin svo sem venja hefur verið undanfarin ár. Að þessu sinni var umsjón með
þeirri dagskrá í höndum Möguleikhússins og hafði það fengið Guðna Franzson tónlistarmann
sér til full-tingis. Árni Björnsson hafði yfirumsjón með jólasveinaheimsóknum.
í safnið komu 23.052 gestir það rúma hálfa ár sem var opið, þar af 4.315 skólanemar og 3.100
á jólasýningu.
Skráning og varðveisla safngripa
Á árinu vann Skeggi hf. á Bakkafirði áfram að tölvusetningu á skrám safnsins og í árslok
höfðu verið sett rúmlega 12000 gripanúmer inn á tölvu. Vonir standa til að halda þeirri vinnu
áfram á nýju ári og að unnt verði að hefja skráningu safngripa af kappi.
Á árinu voru 3 mjög gömul afspilunartæki og eitt upptökutæki („fónógrafar") send til við-
gerðar til Johannesar Ankers á Borgundarhólmi. Hann er verkfræðingur og áhugamaður um
slík tæki og manna fróðastur um gerð þeirra. Tækin komu til baka ásamt greinargóðri skýrslu
og skráningu.
Þá var unnið að flutningi safngripa x geymsluna við Holtagarða. Var skipulagning og fram-
kvæmd flutninganna í höndum Árna Guðmundssonar, Halldóru Ásgeirsdóttur og Kristins