Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 137
ÁRSSKÝRSLA 1995
141
ig vann hann ýmis verkefni önnur fyrir safnið. Nokkrir aukastarfsmenn unnu tímabundið að
einstökum verkefnum fyrir sjálfsaflafé deildarinnar.
Nokkuð rættist úr húsnæðismálum Myndadeildar um sinn. Við viðgerð Bogageymslu voru
myndir fluttar þaðan og í hluta af rými þar sem Sjóminjasafnið var áður á jarðhæð safnhúss-
ins, en síðan var horfið frá að flytja aftur í Bogageymslu nema filmu- og plötusöfn. í salnum
eru nú Mannamyndasafn, Ljós- og prentmyndasafn og póstkortasöfn og var sköpuð þar að-
staða fyrir viðskiptamenn safnsins svo og til skammtímavinnu.
Deildin festi kaup á fleiri dragskápum á brautum sem voru settir upp og ófrágengnum
söfnum komið þar fyrir.
Safnauki deildarinnar varð um 70 færslur í aðfangabók. Helzt er að nefna filmusafn úr fór-
um Sverris Haraldssonar listmálara, filmusafn Halldóru Guðmundsdóttur, um 5.000 filmur er
hún sjálf gaf, plötur og frumkopíur frá Magnúsi Gíslasyni ljósmyndara er Pálína G. Ólafsdóttir
barnabarn hans gaf og syrpu af mannamyndum, sem Jóhann Rafnsson í Stykkishólmi gaf. Þá af-
henti Þjóðskjalasafn Islands til varðveizlu vegabréfamyndir úr skjalasafni Lögreglustjórans í
Reykjavík sem skipta þúsundum. - Flestar þessar myndir og plötur eru frá fyrri hluta aldarinnar.
Mikið verk deildarstjóra og ljósmyndara fer í þjónustu við viðskiptavini, útvegun mynda,
upplýsingar og eftirtökur. Fjöldi útsendra reikninga var 211 sem er aukning frá fyrra ári, en
tekjur hafa ekki aukizt og má kenna um samdrætti í bókaútgáfu. Allar tekjur deildarinnar fara
í uppbyggingu hennar, kaup á skápum og umbúðum og í launagreiðslur til fólks í sérverk-
efnum.
Gengið var frá skrá yfir filmu- og plötusöfn í Þjóðminjasafni er Halldór og Inga Lára
sömdu, hún síðan fjölfölduð og dreift til safna og helztu viðskiptavina deildarinnar. Þar eru
upplýsingar um þau 78 filmu- og plötusöfn, sem komin voru í Þjóðminjasafnið um mitt ár
1995.
Æsa Sigurjónsdóttir sagnfræðingur leitaði að íslenzkum myndum í frönskum söfnum, og
varð nokkur árangur af. Þar fann hún elztu ljósmynd, sem enn er þekkt af íslenzkum manni,
daguerrótýpu af Bjarna Jónssyni rektor árið 1845.
Mikið var unnið að skráningu mynda. Inga Lára skráði safnauka frá árinu 1990 í Ljós- og
prentmyndasafni, 430 númer. Halldór J. Jónsson lauk skráningu safnauka í Mannamyndasafni
frá 1993, 543 númer, og vann að skráningu safnauka frá 1994, 1377 númer skráð um áramót.
Sigurjón Baldur Hafsteinsson M.A. vann við deildina um þriggja mánaða skeið og skráði Ljós-
og prentmyndasafnið inn á tölvu samkvæmt eldri skráningu og hóf jafnframt ítarlega endur-
skráningu á safninu á tölvu. Meðan safnið var lokað gerðu gæzlukonur safnsins spjaldskrár
yfir plötusafn Ólafs Oddssonar Ijósmyndara og eru 19.000 númer þar á spjaldskrá. Þær gerðu
einnig spjaldskrá yfir passamyndaplötusafn frá ljósmyndastofu Sigríðar Zoega, 12.656 númer,
og hófu gerð spjaldskrár yfir safn Sigurðar Guðmundssonar ljósmyndara.
Horfið var frá að taka í notkun norska tölvuskráningarkerfið sem til stóð en í stað þess tekið
upp forritið Urður I, sem Brynhildur Ingvarsdóttir og Hrefna Róbertsdóttir safnverðir í Árbæj-
arsafni hafa hannað. Hefur það verið tekið upp víðar.
ívar Brynjólfsson kopieraði safn Sigurðar Norðdahls ljósmyndara, 4.4464 filmur, og tók eftir
svart-hvítum filmum og plötum í safni Sigurðar Tómassonar úrsmiðs, um 1.300 talsins. Jafn-
framt kopieraði hann smærri söfn, frá Magnúsi Gíslasyni ljósmyndara, M. Morrison og Sigurd
Houth. Þá hóf hann að taka eftir frumkopíum frá 19. öld, sem settar verða í hvíldargeymslu og
ekki handfjatlaðar heldur kopíur notaðar framvegis.
Gengið var frá eftirtökum mynda í möppum. Inga Lára númeraði afganginn af póstkorta-
safni Andrésar Johnsons, 935 kort, og númeraði og gekk frá almenna póstkortasafninu, 2.590
kort. Gæzlukonur unnu við að setja plötusafn Péturs Brynjólfssonar í sýrulaus umslög og luku
7.000 plötum á starfstíma sínum við deildina.
María Karen Sigurðardóttir forvörður fékk styrk úr Þjóðhátíðarsjóði til að skilja nitrat- og
acetat-filmur frá öðrum filmum og plötum og komst nokkuð áleiðis með verkið fyrir styrkinn.
Hrafnhildur Arnardóttir setti myndir í yfirstærðum í Mannamyndasafni í sýrulausar um-
búðir.