Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 139

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Side 139
ÁRSSKÝRSLA 1995 143 Safnkennari sótti alþjóðaráðstefnu ICOM í Stafangri, einnig heimsótti hann söfn í Finn- landi. Eftir að áfanga í viðgerð safnhússins lauk var kennslustofan lagfærð nokkuð sem nauðsyn var til og keyptar sessur fyrir börn. Þjóðháttadeild. Hallgerður Gísladóttir var í rannsóknarleyfi til 1. ágúst og leysti Sigríður Sig- urðardóttir safnstjóri í Glaumbæ hana af til 1. maí. 1. október var Hallgerður sett í stöðu deild- arstjóra í stað Árna Björnssonar, sem nú gegnir tímabundið starfi útgáfustjóra Þjóðminjasafns- ins. Ilmur Árnadóttir vann um tíma að tölvuskráningu og fleiri skrifstofustörfum við deildina. Tvær spurningaskrár voru sendar út í október; skrá 87 um veiðar í ám og vötnum og skrá 88 um þorrablót fyrr og nú og aukaspurning um skeifur. Skráð aðföng deildarinnar voru 575. Hallgerður ferðaðist ásamt Steinunni Ingimundardóttur um Strandasýslu viku í október til að safna heimildum um matarhætti fyrrum og um ýmsa þætti daglegs lífs á fyrri tíð. Viðtöl við roskna Strandamenn, um það bil 12 klst. á segulböndum, liggja eftir þá ferð ásamt myndum og öðru. Uppskriftir af segulböndum eru nú á lokastigi. Að auki fékk þjóðháttadeild nýja heimildarmenn eins og ævinlega þegar starfsmenn hennar fara um landið. Hallgerður sótti í apríl ráðstefnu í Gautaborg um konur í sýningum safna. Eins og endranær komu starfsmenn deildarinnar oft fram í fjölmiðlum á árinu svo og hjá ýmsum félagasamtökum. Árni Björnsson hefur undanfarið gegnt starfi ritstjóra „Islenskrar þjóðmenningar", en eng- in hreyfing er þó á útgáfu hennar sem stendur, þar eð útgefandinn hefur haldið að sér hönd- um. Árni hefur þó samband við höfunda ritsins ef útgáfa hæfist á ný. Árni vann einkum að útgáfum á vegum safnsins. Hann aðstoðaði við að búa til prentunar rit Guðmundar Olafssonar „Friðlýstar fornleifar í Borgarfjarðarsýslu" og bók Guðrúnar Svein- bjarnardóttur um leirkerabrot á Islandi. Þá vann hann að samningsgerð vegna bókarinnar „Ger- semar og þarfaþing", sá um texta á endurnýjuðum sýningum safnsins og samdi og las yfir texta fyrir sýningar þess og útgáfur. Árni var í Berlín 17.-19. apríl og kannaði nýfundnar þjóðlagaupptökur Jóns Leifs tónskálds á vaxhólkum í hljóðritasafni þar. Hann flutti fyrirlestra um ýmsa þætti íslenzkrar þjóðmenn- ingar í Greifswald 20. og 22. apríl, í Færeyjum 29. júní og í Þrándheimi 3. október. Að auki flutti hann ýmis erindi hjá félagasamtökum hér innanlands. Hann annaðist samskipti vegna við- gerðar á gömlum hljóðupptökutækjum safnsins erlendis, vann að jólasýningu safnsins og vann með Möguleikhúsinu að jólasveinatextum og tónlistarflutningi gagnvart fyrirtækinu Jólalandi í Hveragerði. Að auki annaðist hann samsldpti við fjölmiðla og aðra, einkum þau er snerta íslenzka þjóðmenningu. Fornleifadeild. Við fornleifadeild starfa Guðmundur Ólafsson deildarstjóri og Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur. Aðalverkefni á vegum deildarinnar voru fornleifarann- sóknir og fornleifaskráning. Rannsakað var enn á Bessastöðum frá 4. maí til 30. nóvember, 8. árið sem grafið er þar. Má ætla að 2-3 ára rannsókn sé eftir. Rannsakað var einkum austan við svonefnt ráðsmannshús sem víkja skal fyrir nýjum forsetabústað. Þar komu í ljós rústir af fjósi og öðrum húsum frá miðöldum og allt til síðustu aldar. Milli þess húss og þjónustuhúss fundust byggingaleifar allt frá upphafi miðalda og til síðustu aldar. Hildur Gestsdóttir veitti rannsókninni forstöðu fram- an af en síðan Sigurður Bergsteinsson og unnu þau síðar að úrvinnslu gagna. Hafið var að tölvuteikna frumteikningar, en vegna umfangs rannsóknanna er erfitt að fá heildarmynd af svæðinu nema með tölvuvinnslu. Á Bessastöðum unnu 3-5 í einu að rannsóknum. Á Hofsstöðum í Garðabæ var rannsakað frá byrjun apríl og til loka september. Það virðast vera byggingaleifar frá landnámsöld og miðöldum, m.a. landnámsaldarskáli, og þar fannst næla i jalangursstíl, einnig snældusnúður og pottbrot úr klébergi sem ávallt bendir til land- námsaldar hér. Ragnheiður Traustadóttir veitti rannsókninni forstöðu. Við Húsið á Eyrarbakka komu í ljós gangstéttar og rennur frá 18. og 19. öld. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson og Ragnar Edvardsson rannsökuðu þær og eru þær nú sýnilegar á yfirborði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.