Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1995, Síða 151
ÁRSSKÝRSLA 1995
155
1. ágúst var farið að flytja muni úr geymslum í Safnahúsið. Eru þeir hátt á þriðja þúsund
og lauk flutningi að mestu í nóvember. Var mikið verk að hreinsa og lagfæra muni, en sumir
gripir höfðu verið áratugi í geymslum. Hófst tölvuskráning í nóvember og var búið að skrá um
500 muni í árslok.
Á árinu voru tvær litlar sýningar á vegum safnsins á efri hæð Safnahússins. Onnur var á
munum er tengdust hreindýrum og hreindýraveiðwn en hin jólasýning og stóð hún fram á þrett-
ándann. Safninu bárust meðal annars skotvopn og smíðaáhöld, grammófónn og plötusafn.
Safninu var falin umsjón með húsum í Kjarvalshvammi hjá Ketilsstöðum, þar sem Kjarval
dvaldist löngum og málaði.
21. september - 2. október rannsakaði forstöðumaður ásamt minjaverði Austurlands forn-
kuml við Þórisá í landi Eyrarteigs í Skriðdal, sem reyndist eitt merkasta kuml er komið hefur í
ljós á síðari áratugum hérlendis.
Sjóminjasafn Austurlands, Eskifirði. I safnið komu alls 1.629 gestir, þar af 358 útlendir, og 177
skólanemar í hópum.
75 munir voru skráðir í aðfangabók og eru skráðir gripir nú 2.738. Meðal þess sem barst má
nefna rauðbrúna leirkrukku, sem kom í dragnót á gamla skipalæginu við Breiðuvíkurkaupstað
við Reyðarfjörð, en hans er getið fyrst um 1600 og lagðist af um 1800. Einnig barst leirbrúsi, sem
kom ásamt fleira braki i vörpu togara á svonefndu „Rauða torgi" um 50 mílur suðaustur af
Gerpi. Hefur þar verið togað yfir skipsflak.
Fyrir opnun safnsins 15. júlí lauk safnstjóri, Geir Hólm, við líkan af Eskifirði eins og bærinn
var árið 1923. Líkanið er afarvel gert og er fróðlegt að sjá af því byggðarþróunina í kaup-
staðnum. Það er um 7 m langt og tekur mikinn hluta af gólfplássinu á efri hæð Gömlu-búðar.
Safnið lánaði nokkra hluti til Stríðsárasafns á Reyðarfirði.
Búið er að lagfæra merkingar í safninu og í gerð eru tvíblöðungar á frönsku og þýzku, en
fyrir voru blöð á íslenzku og ensku. Þá er unnið að bæklingi með ljósmyndum og textum, eink-
um ætluðum til að kynna safnið ferðaskrifstofum.
Lítils háttar var gert við bátinn Nakk og sóttur var gamall trillubátur að Helgustöðum við
Reyðarfjörð. Safnið skortir mjög geymslur.
Safnið annast vernd gamla Dalatangavitans, sem áhugamenn endurreistu og segir frá í
skýrslu 1989.
Byggðasafn Austur-Skaftfellinga. I safnið komu 2.213 gestir á árinu. Komið var upp lítilli
krambúð í Gömlu-búð í tilefni 75 ára afmælis Kaupfélags Austur-Skaftfellinga og um páskana
setti nýstofnað safnarafélag upp sýningu í Pakkhúsinu við höfnina. Nokkrar endurbætur voru
gerðar á húsinu. Gamla verbúðin í Miklagarði var opnuð á sjómannadaginn.
Meðal gripa sem bárust má nefna líkan af vélbátnum Hvanney.
Safnið er hluti Sýslusafns Austur-Skaftafellssýslu. Nýráðinn forstöðumaður þess er Eiríkur
P. Jörundsson.
Byggðasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga. Gestir urðu yfir 27.000 á árinu sem er mesta að-
sókn að byggðasafni hérlendis. Hefur gestum í Skógum fjölgað jafnt og þétt árlega. Um 80%
gesta eru útlendingar og um 80% þeirra þýzkumælandi fólk. Fá gestir leiðsögn í safninu og er
dag hvern einhver sýnikennsla þar í gömlum vinnubrögðum og leikið á gömul hljóðfæri.
Lokið var byggingu nýja safnhússins sem var vígt með viðhöfn 9. september að viðstödd-
um m. a. ráðherrum menntamála og dóms- og kirkjumála. Fékk safnið ýmsar merkar gjafir við
þau tímamót, svo sem frummyndir úr Ferðabók Gaimards úr héruðunum eystra og gömlu ís-
lenzku biblíurnar úr fornbókasafni Andrésar Valbergs, sem hann hefur ánafnað safninu.
Húsið er gott og vandað og hátt til lofts. Þar er á miðju gólfi áraskipið Pétursey undir seglum
en sjóminjar umhverfis og ýmsir aðrir sýningargripir í skápum. I anddyri er móttaka ferðamanna
og sýningarskápar og sýningar eru í loftsherbergjum, en í kjallara er skjalasafn héraðanna í eld-
traustu rými ásamt handbókasafni, hvort tveggja mikið og gott. Skapast hér góð aðstaða fyrir fræði-
menn í héraðssögu og ættfræði. Þar er og lítil íbúð fyrir fræðimann og sýningarherbergi, þar sem
meðal annars er símaminjasafn, sem Sigþór Sigurðsson símaverkstjóri í Litla-Hvammi hefur safnað.
í stórum sal innst mun verða sett upp náttúrugripasafn, sem Andrés Valberg hefur gefið Skógaskóla.