Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 14
14
NORÐURLJÓSIÐ
Þannig á enginn endurfæddur maður að láta sig vanta við
borð Hans, nema einhver sérstök ástæða sé til þess. Ekkert
annað á að koma í stað þessarar stundar, þegar Drottinn vor
Jesús Kristur mælir sér mót við okkur. Hann gengur sjálfur á
undan hjörð sinni. Hann mætir fyrstur á slíka samkomu. í
Hebreabréfinu 10.25 minnir Heilagur Andi okkur á: „Van-
rækið ekki safnaðarsamkomur yðar.“
Sérhver trúaður maður verður að sjá til þess, að hann komi
fram fyrir Drottin í góðu sálarástandi, í sönnu samfélagi við
Guð, með hjarta sem er fullt af lofgjörð og tilbeiðslu.
í Orðinu segir, að Faðirinn leiti að sönnum tilbiðjendum,
sem tilbiðji Hann í Anda og sannleika. Þess vegna er afar
þýðingarmikið að hafa Drottinn Jesúm Krist fyrir hugskots-
sjónum. Það er eingöngu í gegnum Hann sem við fáum að
nálgast Guð.
í gildistíð Móselögmálsins gat æðsti presturinn ekki komið
inn í hið allra heilagasta, nema með blóð. í dag getur enginn
lifandi maður komið fram fyrir hinn heilaga Guð, nema fyrir
blóð Jesú Krists. Kristur er í dag æðsti prestur í húsi Guðs.
Sérhver trúaður maður á þess vegna að taka sér tíma til að
rannsaka hjarta sitt. Skoða sjálfan sig í ljósi Guðs í alvarlegri
bæn. Mikilvægt er að játa syndir og yfirsjónir sínar, áður en
tilbeiðslan byrjar. Fyrir samkomuna er gott að lesa Guðs orð
og hugleiða það, einkum varðandi þjáningu, dauða og upp-
risu Drottins vors Jesú Krists.
Mikil blessun er fólgin í því að hugsa um og tala við Hann
á leiðinni.
Miklu máli skiptir að mæta stundvíslega á samkomuna,
frekar nokkrum mínútum fyrir tilsettan tíma. Þá gefst tæki-
færi til að eiga hljóða stund í hugleiðingu, áður en tilbeiðslan
byrjar og m.a. leiða hugrenningar í burtu frá mönnum og
málefnum sem hugann trufla.
Hafa ber í huga, að sljóleiki varðandi mætingu segir
nokkuð til um andlegt ástand viðkomandi.
Enginn getur, á slíkri stundu, leyft sér að breyta eftir eigin
geðþótta. Þótt enginn stjórnandi sé, né nokkur fastákveðin
dagskrá, verður hver einstakur að sýna aðgát. T.d. er ekki
æskilegt að stinga upp á sálmum, lesa ritningarorð eða flytja