Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 98
98
NORÐURI-JÖSIÐ
samstundis fyrir kraft Krists. En það má vera, að þú hafir
ekki hugsað um þetta. Þú hefur, ef til vill, verið að reika frá
einu til annars, en þú þarft að læra fánýti þess alls, svo að þú
segir, eins og maðurinn í sögunni: „Ég sagði við lærisveina
þína, að þeir skyldu reka hann út, en þeir gátu það ekki. Ég
hefi hagnýtt mér náðarmeðulin, ég hefi hlýtt á þjóna þína, ég
hefi lesið góðar bækur. En hvorki bækur, né guðsþjónar, né
guðsþjónustur, né allt þetta sameinað getur rekið illa andann
út af mér. Drottinn, þú verður að gera það. Kristur vill að
við skulum skilja vel fánýti sérhverrar annarrar vonar, svo að
við komum til hans sjálfs og leitum blessunar hjá honum.“
En þótt vesalings faðirinn hefði lýst sjúkdómnum og játað,
að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með lærisveinana, þá,
samt sem áður, lét frelsarinn hann ennþá sjá þá ógæfu, sem
hann vildi fá barn sitt frelsað frá. Þá og þar, frammi fyrir
þeim öllum, þegar þeir færðu sveininn til Jesú, fór illi andinn
að teygja hann sundur og saman, ef til vill ákafar en nokkru
sinni fyrr. Hann froðufelldi og virtist að síðustu kominn í
slíkt ástand, að þeir, sem horfðu á, sögðu: „Hann er skilinn
við.“
í nálægð sjálfs Krists reyndi illi andinn til hins ýtrasta að
halda bráð sinni, eða þá að minnsta kosti að eyðileggja lík-
amann, sem hann bjó í, áður en hann yfirgæfi hann. Vinur,
það getur verið, að Drottinn leyfi, ef þú ert leitandi, að
syndin brjótist út hjá þér í verri mynd en nokkru sinni fyrr,
áður en hann rekur hana út. Það má vera, að þú kveðir upp
yfir sjálfum þér dauðadóminn, og reyndar vona ég, að þú
gerir það. Því að þegar sérhver holdleg von deyr, og þú
örvæntir algerlega um það, að þú getir frelsað þig sjálfur, þá
er komið augnablikið, þegar almættiskraftur guðlegrar náð-
ar kemur til og opinberar sjálfan sig takmarkalausan. Ó, þú,
sem ert alveg yfirkominn af örvæntingu um sjálfan þig, ég
gleðst af því. Ég býst við að sjá Krist koma til þín, reisa þig
upp og segja við illa andann: „Far þú burt og kom aldrei
framar inn í hann.“ Guð gefi, að það verði svo! Eða ef
áhyggja þín er út af einhverjum öðrum.
Það má vera, að Guð leyfi synd ástvinar þíns að verða
meira áberandi en nokkurn tíma áður. Þú hefur verið að