Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 1

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 1
Lögfræðingatal. Eptir Magnús Stephensen. Lögfræðingatal það, sem hjer fer á eptir, á að ná yfir alla þá íslendinga, sem hafa tekið fullkomið próf i lögum (candidati juris) eða próf í dönskum lögum (examinati juris) við háskólann í Kaupmannahöfn, frá því að próf þessi voru sett með tilskipun xo. febrúar 1736. Síðan hefur tilhöguninni á prófum þessum verið breytt smátt og smátt með skipulagsskrá háskólans 7. maí 1788, tilskipun 26. janúar 1821, tilskipun 30. desem- ber 1839 og reglugjörð 30. júní 1871. Fyrst framan af var próf haldið í hverjum mánuði, hvenær sem ein- hver gaf sig fram, en 1788 var þessu breytt þannig, að próf skyldi halda fjórum sinnum á ári, og síðan 1821 er það aðeins haldið tvisvar á ári. Prófið var allt fram að 1872 tvöfalt: teóretiskt próf, bæði skrif- legt og munnlegt, og praktiskt próf, eingöngu skrif- legt; en praktiska prófið var ekki skilyrði fyrir em- bættisveitingu fyr en eptir 1821, og því ljetu margir sjer nægja fyrir þann tíma að ljúka aðeins teóretiska prófinu. Fram að 1840 var aðeins gefin ein aðaleink- unn fyrir hvort próf, teóretiskt og praktiskt, en síðan hefur verið gefin einkunn fyrir hverja prófgrein, og aðaleinkunnin siðan leidd af þeim. Frá 1821 til 1872 voru prófgreinarnar í hinu fullkomna lagaprófi 13, og Tímarit hins íslenzka Bókmentafélags. III. 14

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.