Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 2
208
í prófinu í dönskum lögum 6; en 1871 var prófgrein-
unum fækkað, svo að þær nú eru 8 í hinu fullkomna
lagaprófi og 5 i prófinu i dönskum lögum, og var
praktiska prófið þá einnig afnumið. Aðaleinkunnirnar
í hinu fullkomna lagaprófi eru: laudabilis et quidern
egregie (ágætiseinkunn), laudabilis (1. einkunn), haud
illaudabilis (2. einkunn) og non contemnendus (3. eink-
unn); í prófinu í dönskum lögum: bekvem (1. einkunn)
og ei ubekvem (2. einkunn). Meðan praktiska prófið
var í gildi, voru aðaleinkunnirnar í þvi hinar sömu
sem í teóretiska prófinu, nema hvað þær í prófinu í
dönskum lögum hjetu vel (1. einkunn) og temmelig vel
(2. einkunn).
Með kgsúrsk. 29. júlí 1848, sbr. opið brjef 10.
ágúst s. á. og auglýsing 10. júní 1851, er auk hins
fullkomna lagaprófs og prófs í dönskum lögum stofn-
að lögfræðispróf, er nefnist próf í stjórnfræði (stats-
videnskabelig Examen), og þeir, sem þvi hafa lokið,
eru nefndir candidati politices. Kennslugreinarnar til
þess prófs eru 10 og aðaleinkunnirnar hinar sömu,
sem í hinu fullkomna lagaprófi. þ>essu prófi hefur að
eins einn íslendingur lokið, og er hann hjer talinn með.
A.
Candidati juris,
1. Árni Sivertsen, fæddur á Hlíðarenda í Fljóts-
hlíð 1769, sonur Sigurðar landskrifara Sigurðarsonar
og konu hans Helgu Brynjólfsdóttur sýslumanns
Thorlacíusar; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1789
og skrifaður í stúdentatölu við háskólann árið
eptir; cand. juris 7. júní 1794 með 2. einkunn. Hann
komst síðan í kansellíið og varð undirkansellisti 30.
maí 1800 og 18. júlí s. á. kansellísekreteri að nafnbót.
]?egar jarðamatsneíndin var sett, 18. júní 1800 (Lovs.