Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 5

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 5
6. Benedikt Gröndahl, fæddur á Vogum við Mý- vatn 13. nóvember 17621, sonur sjera Jóns þórarins- sonar, siðast prests í Mývatnsþingum, og konu bans Helgu Tómasdóttur frá Ósi Tómassonar; útskrifaður úr Hólaskóla 1781, var 3 ár skrifari hjá Ólafi stipt- amtmanni, og var skrifaður í stúdentatölu við háskól- ann 1786; cand. juris 24. júní 1791 með 1. einkunn i báðum prófum. 19. ágúst s. á. varð hann varalögmað- ur sunnan og austan hjá Magnúsi lögmanni Ólafssyni, og við andlát Magnúsar lögmanns, i4.janúar 1800, lög- maður sunnan og austan. þegar landsyfirdómurinn var stofnaður með tilskipun 11. júlí 1800, var Bene- dikt Gröndahl s. d. skipaður assessor í honum, og þegar Stefáni assessor Stephensen var veitt vesturamt- ið, 6. júní 1806, varð hann 1. assessor. Fráþvi embætti fjekk hann lausn 18. júní 1817 og andaðist i Reykja- vík 30. júlí 1825; áður hafði hann búið á Elliðavatni, Bakka á Seltjarnarnesi og lengst í Nesi við Seltjörn. Kona hans var f>uríður (ý 26. sept. 1839) Ólafsdóttir frá Frostastöðum Jónssonar (sbr. A 44 og 71), ogþeirra dætur Helga, kona Dr. Sveinbjarnar Egilssonar, og Ragnhildur, fyrri kona Stefáns Gunlögsens, land- og bæjarfógeta. Sbr. Lögmannatal Jóns Sigurðssonar, Nr. 137, í Safni til sögu íslands, II, 165. 7. Benedikt Sveinsson, fæddur á Sandfelli í Öræf- um 20. janúar 1827, sonur sjera Sveins Benediktsson- ar, siðast prests á Mýrum í Álptaveri, og konu hans Kristínar Jónsdóttur bónda á Kjalarnesi Örnólfssonar; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1852 ; cand. juris 22. júní 1858 með 1. einkunn i báðum prófum. 5. maí árið 1) Svo segir í æfisögu hans eptir Dr. Sveinbjörn Egils- son, sem er prentuð framan við kvæði hans, Viðey 1833; en í Klausturpóstinum 1825, 134. bls., sbr. 154. bls., segir, að hann hafi verið fæddur 30. nóvember 1758.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.