Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 7
213
9. Bjarni Einarsson, fæddur á Vatneyri í Patreks-
firði 1746, sonur Einars bónda Bjarnasonar á Vatn-
eyri og konu hans Kristínar porvarðardóttur prests í
Sauðlauksdal Magnússonar; útskrifaður úr Skálholts-
skóla 1771 og skrifaður árið eptir í stúdentatölu við
háskólann; cand. juris 6. september 1775 með 2. einkunn.
Sama ár gjörðist hann lögsagnari Davíðs sýslumanns
Schevings i Haga og íjekk veitingu fyrir Barðastrandar-
sýslu eptir hann 2. ágúst 1781, en 14. maí 1788 var
honum veitt lausn frá henni aptur. Bjarni sýslumað-
ur bjó fyrst á Haga á Barðaströnd og síðan í Breiðu-
vík og andaðist þar 5. maí 1799; hann átti Ragnheiði
Daviðsdóttur sýslumanns Schevings (sbr. B 29), og var
þeirra son Guðmundur Scheving agent og kaupmaður
í Flatey.
10. Bjarni Einar Magnússon, fæddur í Flatey 1. des-
ember 1831, sonur Magnúsar beykis Gunnlaugssonar
í Flatey og konu hans þóru Guðmundsdóttur agents
Schevings; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1854;
cand. juris 5. júni 1860 með 1. einkunn í báðum próf-
um. Honum var veitt Vestmannaeyjasýsla 18. febrúar
1861 og Húnavatnssýsla 24. júlí 1871; reisti hann þar
bú á Geitaskarði i Langadal en andaðist snögglega á
heimili sinu 25. maí 1876. Kona hans var Hildur Bjarna-
dóttir amtmanns Thórarensens. Æfiminning Bjarna
sýslumanns Magnússonar er prentuð í Rvík 1879.
11. Bjarni Thórarensen, fæddur á Lágafelli 30.
desember 1786, sonur Vigfúsar sýslumanns þórarins-
sonar (A94); útskrifaður úr heimaskóla 1802 og skrif-
aður árið eptir i stúdentatölu við háskólann ; cand.juris
20. júní 1806 með 1. einkunn í báðum prófum ; hann
var síðan i kansellíinu, og varð þar undirkansellisti 25.
ágúst 1809, og kansellísekreteri að nafnbót 22. febrúar
1811 ; 1 g. marz s. á. var hann skipaður auka-assessor
i yfirdóminum, og 18. júni 1817 2. assessor. Honum