Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 8
214
var veitt Árnessýsla 22. júní 1820, en 1. maí 1822 varð
hann aptur 2. assessor í yfirdóminum (Lovs. for Isl.
VIII, 320), og bjó á Gufunesi; 1. ágúst 182Q var hon-
um veitt jústizráðs nafnbót. Hann varð amtmaður í
norður- og austuramtinu 10. ágúst 1833, og riddari danne-
brogsorðunnar 10. júni 1841, og andaðist á Möðruvöll-
um í Hörgárdal 24. ágúst s. á. Hann þjónaði stipt-
amtmannsembættinu og amtmannsembættinu í suður-
amtinu fyrir Castenskjold 1814—1815, ogaptur 1817 og
þangað til Moltke tók við í júní 1819. Hann varíem-
bættismannanefndinni í Reykjavik 1839 og 1841. Bjarni
amtmaður átti Hildi (-j- i nóv. 1882) Bogadóttur frá
Staðarfelli Benediktssonar; synir þeirra voru Bogi
sýslumaður (A 14), Vigfús gullsmiður, þórarinn og
sjera Jón í Saurbæjarþingum; en dætur: Steinunn,
kona Jóns prófasts Melsteðs í Klausturhólum, og Hild-
ur, kona Bjarna sýslumanns Magnússonar (A 10).
12. Bjarni Thorsteinson, fæddur á Sauðhúsnesi íÁlpta-
veri 31. marz 1781; sonur þorsteins bónda Steingrimsson-
ar i Kerlingardal, móðurbróður Steingríms biskups, og
fyrri konu hans Guðrúnar Bjarnadóttur sýslumanns Niku-
lássonar; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1800; var síðan
skrifari hjá Geir biskupi, og var skrifaður í stúdentatölu
við háskólann 1804; cand juris 24. október 1807 með
1. einkunn í báðum prófum; komst hann þá í rentu-
kammerið, varð kopíisti þar 2. júlí 1808, og ritstofu-
fulltrúi 10. júní 1811, og fjekk sekretera nafnbót 28.
september 1816; 6. október 1819 varð hann jafnframt
embætti sínu í rentukammerinu auditör við sjóforingja-
skólann. Hann varð 2. assessor í yfirdóminum 29.
september 1820, en þjónaði aldrei því embætti, því
hann var skipaður amtmaður í vesturamtinu 5. mai
1821, og kom ekki út fyr en þá um vorið. 30. sept-
ember 1823 var hann settur stiptamtmaður og amt-
maður í suðuramtinu, og þjónaði þeim embættum þang-