Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 9
215
að til Peter Fjeldsted Hoppe tók við árið eptir, og
aptur frá 6. september 1825 til 7. júní 1826 í fjærvist
Hoppes; frá amtmannsembættinu í vesturamtinu fjekk
hann lausn 2. marz 1849. Hann var sæmdur riddara-
krossi dannebrogsorðunnar 1. ágúst 1829, heiðurs-
merki dannebrogsmanna 10. júní 1841 og konferenz-
ráðs nafnbót 8. marz 1843. Hann sat í embættismanna-
nefndinni f Reykjavfk 1839 og 1841, og á alþingi 1845
sem konungkjörinn þingmaður, og var forseti þings-
ins; einnig var hann skrifari í nefnd þeirri, sem var
sett með konunglegri umboðsskrá 5. marz 1816 til að
rannsaka verzlunarástandið á íslandi (I.ovs. for Isl. VII,
579. °g VIII, 276), og aptur nefndarmaður f sams
konar konunglegri nefnd, er skipuð var 3. maí 1834
(Lovs. for Isl. X, 487). Meðan hann var amtmaður í
vesturamtinu, bjó hann á Arnarstapa, en fiutti sig til
Reykjavíkur, eptir að hann fjekk lausn, og andaðist
þar 3. nóvember 1876. Bjarni konferenzráð átti þ>ór-
unni Hannesdóttur biskups Finnssonar, og komust 3
synir þeirra til aldurs: Finnur exam. juris (B 8), Árni
landfógeti (A 2) og Steingrímur adjunkt við Reykja-
vfkurskóla.
13. Björn Markússon, fæddur á Ögri í Ögursveit
31. ágúst 1716, sonur Markúsar Bergssonar í Ögri,
sýslumanns í ísafjarðarsýslu, og konu hans Elínar
Hjaltadóttur prófasts þorsteinssonar í Vatnsfirði; út-
skrifaður úr Skálholtsskóla 1735, sfðan skrifari, fyrst
hjá föður sínum, þar næst hjá Ólafi Árnasyni, sýslu-
manni á Barðaströnd, og seinast hjá Lafrentz amtmanni
á Bessastöðum; fór utan, og var skrifaður í stúdenta-
tölu við háskólann 1744; exam. juris 1745, og cand.
juris 30. júnf 1746 með 1. einkunn í báðum prófum.
Hann fjekk veitingu fyrir Skagafjarðarsýslu 9. desem-
ber 1749, varð jafnframt varalögmaður sunnan og vest-
an hjá Magnúsi lögmanni Gíslasyni 4. desember 1750