Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 15
221
juris 22. marz 1776 uieð 1. einkunn í báðum prófum.
Hann lagði stund á fornfræði, og varð aðstoðarmaður
við skjalasafn konungs 1780; hann ferðaðist 1786 til
Englands, og 1788 var hann gjörður Dr. juris af há-
skólanum í St. Andrews og varð Geheime-Arkivarius
n.janúar 1791. Hann fjekk jústizráðs nafnbót 17.
febrúar 1794, etazráðs nafnbót 2i.ágúst 1810, riddara-
kross dannebrogsorðunnar 28. janúar 1811 og konfer-
enzráðs nafnbót 1. nóvember 1828. Með konunglegri
umboðsskrá 12. desember 1799 (Lovs. for Isl. VI, 414)
var hann skipaður í nefnd um skólamál og dómaskip-
un á íslandi. Hann andaðist í Kaupmannahöfn 4. marz
1829. Grímur Thorkelin átti danska konu, ríka brugg-
araekkju1, og áttu þau börn, sem öll ílengdust í Dan-
mörku.
23. Guðíaugur Guðmundsson, fæddur á Ásgarði í
Grímsnesi 8. desember 1856, sonur Guðmundar Olafs-
sonar bónda þar; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1876;
cand. juris 12. janúar 1882 með 2. einkunn; settur
sýslumaður í Dalasýslu 13. apríl s. á. Hann á sænska
konu.
24. Guðmundur Ketilsson, fæddur á Húsavík 14.
október 1746, sonur sjera Ketils Jónssonar, prests þar,
og seinni konu hans Guðrúnar þórðardóttur prests á
Hvammi í Hvammssveit þ>órðarsonar; útskrifaður úr
heimaskóla 1768 og skrifaður í stúdentatölu við há-
skólann 1771 ; cand. juris 6. desember 1776 með 1.
einkunn. Hann varð sýslumaður í Mýrasýslu 30. marz
1778 og 9. ágúst 1786 einnig í Hnappadalssýslu, er
þá var sameinuð við Mýrasýslu (Lovs. for Isl. V, 299);
Borgarfjarðarsýslu þjónaði hann jafnframt sem settur
1784—86 og aptur 1793. Hann fjekk lausn frá em-
1) Lars Kristjan Hvidsteen, sem var settur læknir á
Vestfjörðum 1817-29, var stjúpsonur Gríms Thorkelíns.