Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 18
224
þjónaði land- og bæjarfógetaembættinu fyrir Vilhjálm
Finsen veturinn 1859—60, og á eigin ábyrgð frá 25.
ágúst 1860 þangað til Árni Thorsteinson tók við árið
eptir, og fjekk Rangárvallasýslu 25. maí 1861. Her-
manníus sýslumaður býr á Velli í Hvolhrepp, og er
kvæntur Inguni Halldórsdóttur bónda á Álfhólum í
Landeyjum þ>orvaldssonar.
31. Illugi Sigurðsson, fæddur á Bægisá 1718, son-
ur sjera Sigurðar Gottskálkssonar, prests þar, og konu
hans Kristínar Halldórsdóttur prests á Bægisá 'þor-
lákssonar; útskrifaður úr Hólaskóla 17471; cand. juris
14. maí 1753 með 2. einkunn ; cand. theol. 1755. Hann
varð sama ár prestur á Hólum í Hjaltadal og prófast-
ur í Skagafjarðar prófastsdæmi, en var dæmdur frá
kalli fyrir illyrði við Svein lögmann Sölvason (ísl. Árb.
X, 59), og andaðist á Hólum 26. febrúar 1759, ókvænt-
ur og barnlaus.
32. ísleifur Einarsson, fæddur á Ási í Holtum 21.
maí 1765, sonur Einars skólameistara i Skálholti Jóns-
sonar og konu hans Kristínar Einarsdóttur lögrjettu-
manns ísleifssonar á Reykjum í Mosfellssveit; útskrif-
aður úr Skálholtsskóla 1783, var síðan skrifari hjájóni
sýslumanni Jónssyni á Móeiðarhvoli, og var skrifaðar
i stúdentatölu við háskólann 1787; cand. juris 23. apríl
1790 með 1. einkunn. Hann fjekk veitingu fyrirHúna-
vatnssýslu 24. marz 1790 með því skilyrði, að hann
lyki prófi í lögum, og var veitingarbrjef hans síðan
út gefið 12. maí s. á.; bjó hann þar á Geitaskarði.
11. júlí 1800 var hann skipaður assessor í yfirdómin-
um, varð 1. assessor 18. júní 1817 og jústitíaríus 18.
apríl 1834. Hann fjekk jústizráðs nafnbót 31. júlí 1810
1) Svo segir sjera Sveinn Níelsson í stúdentatali sínu
(handrit); en Illuga er eigi getið í vitnisburðabók skólans,
sbr. einnig Isl. Arb. X, 10.