Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 21
227
Lovs. for Isl. III, 713); 14. janúar 1773 var hann skip-
aður „Deputeret“ (stjórnardeildar-forstjóri) í toll- ogf
verzlunarstjórninni („Det vestindisk-guineiske Rente-
og Generaltoldkommer“ og „Ökonomi og Kommerce-
kollegiet) (Lovs. for Isl. IY, 1) og frá 1. janúar 1777
„Deputeret“ í rentukammerinu og þjónaði hann því
embætti til dauðadags; jafnframt varð hann assessor í
hæstaijetti 1779 og vörður hins stóra konunglega bóka-
safns 18. apríl 1781. Jón Eiríksson var skipaður í margar
nefndir: 24. septbr. 1772 1 stjórnarnefnd Árna Magús-
sonar gjafarinnar; 20. maí 1778 í hina almennu skólanefnd
(Lovs. for Isl. IV, 769); 31. desember 1783 í nefndina
um biskupsstólana (s. st. IV, 770); 16. febrúar 1785 í
nefnd til að rannsaka ástand íslands (s. st. V, 124) og
17. janúar 1787 í nefnd þá, er selja skyldi eigur kon-
ungsverzlunarinnar (s. st. V, 355). Hann var kosinn
fjelagi hins konunglega norska vísindafjelags 3. desem-
ber 1769, fjelagi hins konunglega danska vísindafjelags
9. febrúar 1770 og forseti hins islenzka lærdómslista-
fjelags 1779. Etazráðs nafnbót var hann sæmdur 6.
apríl 1775 og konferenzráðs nafnbót 17. apríl 1781.
Hann andaðist í Kaupmannahöfn 29. marz 1787. Kona
hans var dönsk, og áttu þau mörg börn; einn af son-
um þeirra var Ludvig Erichsen, sem varð amtmaður í
vesturamtinu og settur stiptamtmaður, en andaðist á
Bessastöðum 7. maí 1804, 38 ára gamall.
Æfisaga Jóns Eiríkssonar eptir Svein Pálsson er
gefin út af hinu islenzka bókmenntafjelagi, Kph. 1828.
37. Jón Espólín, fæddur á Espihóli f Eyjafirði 22.
október 1769, sonur Jóns sýslumanns Jakobssonar og
konu hans Sigríðar Stefánsdóttur prests á Höskulds-
stöðum Ólafssonar; útskrifaður úr heimaskóla 1788 og
skrifaður árið eptir i stúdentatölu við háskólann; cand.
juris 18. júní 1792 með 2. einkunn í hinu téoretiska og
3. einkunn í hinu praktiska prófi. Hann fjekk veit-