Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 22
228
ingu fyrir Snæfellsnessýslu 19. september 1792, og
með kgsúrsk. 16. september 1796 var honum leyft að
hafa sýsluskipti við Finn Jónsson, sýslumann í Borg-
arfjarðarsýslu; aptur var honum leyft með kgsúrsk 21.
apríl 1802 að hafa sýsluskipti við Jónas Scheving, sýslu-
mann í Skagafjarðarsýslu, og þjónaði hann henni síð-
an þangað til hann fjekk lausn frá embætti 20. sept-
ember 1825. Hann bjó á Brekkubæ við Hellna og
Fróðá á Snæfellsnesi, á þingnesi í Borgarfirði, og á
Flugumýri, Viðvík og Frostastöðum í Skagafirði, og
andaðist snögglega á ferð nálægt Flugumýri 1. ágúst
1836. Kona hans var Rannveig Jónsdóttir bónda á
Vatnshorni í Haukadal Egilssonar og þeirra sonur sjera
Hákon, síðast prestur á Kolfreyjustað.
38. Jón Finsen , fæddur í Skálholti 26. marz
1792, sonur Hannesar biskups Finnssonar og seinni
konu hans Valgerðar Jónsdóttur sýslumanns Jóns-
sonar á Móeiðarhvoli (A 43); útskrifaður úr heima-
skóla af Steingrími biskupi Jónssyni 1812; cand.
juris 10. janúar 1816 með 1. einkunn i báðum próf-
um. Hann var síðan í kansellíinu og varð undir-
kansellisti 1. marz 1820 og fjekk kansellísekretera
nafnbót 28. desember 1821. 5. maí 1824 varð hann
hjeraðsfógeti og skrifari í Anst, Slaugs, Jerlev og
nokkrum hluta Brusk hjeraðs í Veileamti; 31. desem-
ber 1830 bæjarfógeti og skrifari í Ringkjöbing og
hjeraðsfógeti og skrifari í Ulfborg og Hind hjeruðum;
17. október 1842 kanselliráð að nafnbót og 10. april
1844 hjeraðsfógeti og skrifari i Hasle, Vesterlisberg,
Framlev og Sabro hjeruðum í Árósa amti. Hann and-
aðist í Árósum 8. október 1848. Hann átti danska
konu; einn af sonum þeirra er Hilmar Finsen lands-
höfðingi.
39. JÓn Helgason, fæddur á Svertingsstöðum í Eyja-
firði 1731, sonur Helga Olafssonar, bónda þar, og konu