Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 23
229
hans Guðrúnar Hallgrímsdóttur bónda í Árgerði Jóns-
sonar; útskrifaður úr Hólaskóla 1755; cand. juris 12.
febrúar 1759 með 2. einkunn. 27. s. m. fjekk hann
veitingu fyrir Austur-Skaptafellssýslu, en var dæmdur
frá embætti 24. júlí 1799. Hann bjó á Hoffelli í Horna-
firði og andaðist þar 1806. Kona hans var Sigriður
(-J- 1817) Magnúsdóttir síðast prests á Hallormsstað Guð-
mundssonar ; sonur þeirra var Magnús Hoffeld, skóla-
genginn, sem varð barnaskólakennari í Noregi og dó
þar ; en dætur: Guðrún kona sjera Bergs Magnússon-
ar á Hofi f Álptafirði, Kristín kona sjera Brynjólfs
Árnasonar í Langholti, Ingibjörg seinni kona sjera Guð-
mundar Skaptasonar á Berufirði, Guðrún yngri, kona
sjera Einars Jónssonar á Desjarmýri og síðan kona
sjera Engilberts J>órðarsonar á pingmúla, J>óra seinni
kona Eiríks Rafnkelssonar á Smirlabjörgum og þ>órun
kona Eiríks Benediktssonar á Hoffelli.
40. Jón iensson, fæddur í Reykjavík 23. nóvember
1855, sonur Jens rektors Sigurðssonar og konu hans
Ólafar Björnsdóttur yfirkennara Gunnlaugssonar; út-
skrifaður úr Reykjavíkurskóla 1876 ; cand. juris 7. jan-
úar 1882 með 1. einkunn og s. á. assistent í hinu ís-
lenzka stjórnarráði.
41. Jón Johnsen, fæddur á Drumboddsstöðum í Bisk-
upstungum 24. febrúar 1806, sonur Jóns umboðsmanns
Johnsens á Stóra-Ármóti (B 15); útskrifaður úr heima-
skóla af Árna biskupi Helgasyni 1825 og skrifaður árið
eptir i stúdentatölu við háskólann; cand. juris 26. októ-
ber 1830 með i.einkunn í báðum prófum. Árið eptir
gjörðist hann aðstoðarmaður bæjarfógetans í Kolding
og varð 2. assessor og dómsmálaritari i yfirdóminum
15. september 1836 ; jafnframt þjónaði hann stiptamt-
mannsembættinu og amtmannsembættinu í suðuramt-
inu fyrir Bardenfleth frá i3.júní 1840 til 19. júní 1841
og aptur fyrir Hoppe frá 9. ágúst 1844 til 20. maí 1845.