Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 25
231
sem dó við háskólann; Valgerður, seinni kona Hann-
esar biskups Finnssonar ; Guðbrandur í Feigsdal, sett-
ur sýslumaður í Barðastrandarsýslu 1812—47; Jón um-
boðsmaður á Stóra-Ármóti (B 15); Ragnheiður, kona
Helga konrektors Sigurðarsonar á Móeiðarhvoli, og
Margrjet. Útfararminning Jóns sýslumanns er prentuð
í Kph. 1794.
44. Jón Jónsson, fæddur 1747, sonur Jóns lög-
rjettumanns Högnasonar á Laugarvatni og konu hans
Guðrúnar Einarsdóttur prests á Lundi Oddssonar; út-
skrifaður úr Skálholtsskóla 1769; cand. juris 18. apríl
1772 með 2. einkunn í hinu teóretiska og 1. einkunn i
hinu praktiska prófi. Hann var lengi eptir það í Kaup-
mannahöfn og starfaði að útgáfu á fornsögum hjá
kammerherra Suhm; eptir að hann kom út hingað
aptur, var hann um tima skrifari hjá Levetzow stipt-
amtmanni og var settur sýslumaður í Strandasýslu 22.
júlí 1788 og fjekk veitingu fyrir sýslunni 26. marz
1794, og þjónaði jafnframt ísafjarðarsýslu 1796—97;
síðan fjekk hann Húnavatnssýslu 23. júlí 1814, en þjón-
aði þó jafnframt Strandasýslu til 4. maí 1817, og 22.
júní 1820 var honum veitt lausn frá embætti. Jón
sýslumaður bjó á Bæ í Hrútafirði, í Víðidalstungu og
á Stóru-Reykjum í Miðfirði, og andaðist í Bæ 1. marz
1831. Hann átti Hólmfríði (-J 1825) Ólafsdóttur frá
Frostastöðum Jónssonar (sbr. A 6); þeirra dætur voru
Anna fyrri kona Bjarna Friðrikssonar Thórarensens á
Stóra-Ósi, og Guðrún kona Pjeturs Jónssonar í Bæ.
45. JÓn Jónsson (Johnsen), fæddur í Reykjavík 23.
apríl 1841, sonur Jóns etazráðs Johnsens (A 41); út-
skrifaður úr Metropolítanskólanum í Kaupmannahöfn
1861 ; cand. juris 17. janúar 1867 með 1. einkunn í báð-
um prófum. Hann varð sama ár aðstoðarmaður föður
síns i Álaborg, og 20. nóvember 1872 var hann skip-
aður ritari við landshöfðingjadæmið frá 1. april 1873