Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 29
235
ii. júní 1794 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann
var síðan föður sínum til aðstoðar í Skagafjarðarsýslu
og fjekk veitingu fyrir henni 21. maí 1800. Með
kgsúrsk. 21. apríl 1802 var honum leyft að hafa sýslu-
skipti við Jón Espólín, sýslumann í Borgarfjarðarsýslu,
og frá 28. ágúst 1806 til 18. apríl 1807 þjónaði hann
jafnframt Mýra- og Hnappadalssýslu; 26. apríl 1816
var honum veitt kansellíráðs nafnbót; 19. maí 1827
fjekk hann lausn frá embætti, en þjónaði þó Borgar-
fjarðarsýslu, þangað til að Stefán Gunlögsen tók við
sumarið 1828. Hann bjó á Leirá og andaðist þar 13.
maí 1831. Kona hans var Ragnheiður (J- 1. marz
1826) dóttir Olafs stiptamtmanns; þau áttu ekki börn.
52. Jónas Thorstensen, fæddur á Nesi við Seltjörn
9. nóvember 1826, sonur Jóns landlæknis Thorsten-
sens og konu hans Elínar Stefánsdóttur amtmanns
Stephensens; útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1846;
cand. juris 16. janúar 1853 með 2. einkunn í báðum
prófum. Hann var s. á. settur sýslumaður í Suður-
Múlasýslu og fjekk veitingu fyrir sýslunni 30. apríl
1854; hann andaðist á Eskifirði 28. október 1861.
Kona hans var jpórdís Pálsdóttir amtmanns Melsteðs;
Elin dóttir þeirra er gipt Magnúsi yfirdómara Ste-
phensen.
53. Jörgen Peter Havsteen, fæddur á Hofsós 16.
febrúar 1812, sonur Jakobs Havsteens, kaupmanns þar,
og konu hans Marenar Havsteen; útskrifaður úr
Bessastaðaskóla 1835; cand. juris 7. nóvember 1840
með 1. einkunn í báðum prófum. Hann var síðan 4
ár í rentukammerinu og fjekk veitingu fyrir Norður-
Múlasýslu 25. apríl 1845* 1. Hann varð amtmaður í
1) I júnímánuði 1843 varð Norður-Múlasýsla laus, því
þá fjekk Walsöe, sýslumaður þar, tollembætti í Danmörku.
I aprílmánuði árið eptir bar rentukammerið upp fyrir kon-