Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 32
238
inum 1851 sat hann sem þjóðkjörinn þingmaður. Hann
fjekk lausn frá embætti 9. júní 1881, og andaðist á
Akureyri 13. maí 1882. Kona hans var Ragnheiður,
dóttir Jóns landlæknis Thorstensens; þau áttu ekki
börn.
56. Kristján Jónsson, fæddur á Gautlöndum við
Mývatn 4. marz 1852, sonur Jóns alþingismanns Sig-
urðssonar á Gautlöndum og konu hans Solveigar Jóns-
dóttur siðast prests á Kirkjubæ í Tungu J>orsteinsson-
ar; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1870; cand. juris
1. júní 1875 með 1. einkunn. Árið eptir fór hann á
skrifstofu landfógetans, og varð sýslumaður í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu 16. ágúst 1878. Hann er
kvæntur Önnu þórarinsdóttur prófasts Böðvarssonar á
Görðum á Álptanesi.
57. Lauritz Eðvarð Sveinbjörnsson, fæddur í
Reykjavík 30. ágúst 1834; sonur Eðvarðs Thomsens,
kaupmanns á Vestmannaeyjum, og Kristínar Lárus-
dóttur Knudsens, kaupmanns í Reykjavik, en ætt-
leiddur af stjúpföður sinum J>órði konferenzráði Svein-
björnssyni (A 100); útskrifaður úr Reykjavíkurskóla
1855 ; cand juris 15. júní 1863 með 1. einkunn í hinu
teóretiska og 2. einkunn i hinu praktiska prófi. Hann
þjónaði Árnessýslu sem settur 1866—68 og fjekk veit-
ingu fyrir J>ingeyjarsýslu 11. októberi8Ó7; i4.febrúar
1874 var hann skipaður bæjarfógeti í Reykjavík og
sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu frá 1. júlí s.
á. (Tíð. um stjórnarmál. ísl. III, 732), og þjónaði þeim
embættum til fardaga 1878. Hann varð 2. assessor og
dómsmálaritari i yfirdóminum 12. apríl 1878. Kona
hans er Jörgína dóttir Guðmundar kaupmanns Thor-
grímsens á Eyrarbakka.
58. Lárus þórarinn Blöndal, fæddur á Hvammi
i Vatnsdal 16. nóvember 1836, sonur Björns sýslumanns
Blöndals (B3); útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1857;