Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 42
248
var harm sæmdur jusPzráðs mfnbót. Hann bjó á Innra-
Hólmi, Brautarholtí ogr í Viðey. sem hann erfði eptir
föður sinn, og andaðist þar 14. apríl ^872. Hann var
þrisvar kvæntur; fyrsta kona hans var Sigríður (-j- 2.
nóv. 1827) dóttir Stefáns amtmanns á Hvítárvöllum, og
þeirra dætur: Guðrún kona Olafs prófasts Pálssonar á
Melstað og Sigriður fyrst gipt sjera þorsteini Jónssyni
i Vogsósum og síðan Guðmundi silfursmið Stefánssyni
á Varmalæk; miðkona hans var Marta (-j- 27. október
1833), alsystir fyrstu konu hans, og þeirra börn: Sig-
ríður fyrst miðkona Havsteens amtmanns (A 53) og
síðan kona sjera Stefáns Thordersens í Kálfholti, og
Magnús óðalsbóndi í Viðey; seinasta kona hans var
Sigriður (-j- 30. sept. 1878) dóttir þórðar sýslumanns
Björnssonar í Garði (A 97).
75. Pjetur þorsteinsson, fæddur á Viðivöllum
ytri í Fljótsdal 24. desember 1720, sonur þorsteins
Sigurðssonar, sýslumanns í nyrzta hluta Múlasýslu, og
konu hans Bjargar Pálsdóttur prests í Goðdölum
Sveinssonar; útskrifaður úr Skálholtsskóla 1742; cand.
juris 28. apríl 1744 með 1. einkunn. Hann var skip-
aður föður sínum til aðstoðar í sýslu hans 29. maí 1746
og fjekk veitingu fyrir sýslunni 5. janúar 1751. Með
kgsúrsk. 29. marz 1779 (Lovs. for Isl. IV, 471) var
Múlasýslunum skipt í 2 jafna parta, og fjekk Pjetur
sýslumaður þá viðbót við sýslu sína. 22. april 1766
var Guttormur Hjörleifsson, tengdasonur hans, skipað-
ur honum til aðstoðar með fyrirheiti um sýsluna eptir
hann, en Guttormur andaðist 1771, og var Guðmund-
ur, sonur Pjeturs sýslumanns, þá skipaður honum til
aðstoðar með sömu kjörum 13. apríl 1773, en 14. júní
1786 fjekk Pjetur sýslumaður lausn frá embætti. Hann
bjó á Ketilsstöðum á Völlum og andaðist þar 4. des.
1795. Hann var tvíkvæntur; fyrri kona hans var J>ór-
unn (-j- 1764) Guðmundsdóttir prests á Kolfreyjustað