Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Qupperneq 43
249
Pálssonar og- þeirra börn: Guðmundur sýslumaður í
Krossavík, Sigurður sýslumaður (A 79), Hólmfríður,
gipt Oddi yfirdómsnótaríusi Stefánssyni á J>ingeyrum,
og Björg, fyrst gipt Hjörleifi varasýslumanni Guttorms-
syni og síðan Árna prófasti þorsteinssyni á Kirkjubæ
í Tungu; seinni kona Pjeturs sýslumanns var Sigríður
(ý 1832) dóttir sjera Olafs Brynjólfssonar á Kirkjubæ
í Tungu; þau áttu ekki börn.
Æfisaga Pjeturs sýslumanns erprentuð sjerílagi,
Kph. 1820.
76. Sigfús Schulesen, fæddur á Höfða í Höfða-
hverfi 19. apríl 1801, sonur sjera Skúla Tómassonar í
Múla og pórvarar Sigfúsdóttur prófasts Jónssonar á
Höfða; útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1825; cand. juris
19. april 1833 með 2. einkunn i báðum prófum. Hann
var 1 rentukammerinu 1829—34, kom út 1834, og var
settur sýslumaður 8. ágúst s. á. í Eyjafjarðarsýslu
þangað til í september árið eptir, að þórður Jónassen
tók við ; apturvar hann settur 29. september 1835 fyrir
þingeyjarsýslu þangað til að Jóhann Árnason tók við
árið eptir. 7. október 1837 var honum veitt Snæfells-
nessýsla og síðan 28. september 1841 Suður-þingeyjar-
sýsla. J>egar Arnór Árnason hafði fengið Húnavatns-
sýslu 10. maí 1847, var Sigfús sýslumaður jafnframt
settur fyrir Norður-þingeyjarsýslu, og 1. maí 1851,
þegar þingeyjarsýslurnar voru aptur sameinaðar, fjekk
hann veitingu fyrir pingeyjarsýslu sameinaðri (Lovs.
for Isl. XV, 76). Hann fjekk kammerráðs nafnbóti7.
janúar 1859 og lausn frá embætti 11. febrúar 1861.
Hann andaðist á Húsavík 29. apríi 1862. Kona hans
var Ingibjörg dóttir Ola kaupmanns Sandholts.
77. Sigurður Jónsscn, fæddur á Steinanesi við Arn-
arfjörð 13. október 1851, sonur Jóns skipherra Jóns-
sonar á Bíldudal og konu hans Margrjetar Sigurðar-
dóttur prófasts Jónssonar á Rafnseyri; útskrifaður úr