Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 50

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 50
bólstað í Fljótshlíð Pálssonar; þéim varð eigi barna auðið. 89. Sveinn Sölvason, fæddur á Stóru-Grund í Eyja- firði 6. september 1722, sonur Sölva Tómassonar Múkaþverár klausturhaldara og konu hans Halldóru Jónsdóttur frá Tungu í Fljótum Sveinssonar; útskrif- aður úr Hólaskóla 1740; cand. juris 20. febrúar 1742 með 1. einkunn. Með konungsbrjefi 30. marz s. á. var hann skipuður varalögmaður norðan og vestan og tók algjörlega við lögmannsdæminu 3. marz 1746, þegar Hans lögmaður Becker andaðist. Hann sat í í nefnd þeirri, er skipuð var með kgsúrsk. 23. maí 1755 til að aðgreina fjárhag biskupsstólanna og skól- anna (Lovs. for Isl. V, 221, 568 og 579). Hann hjelt og Múkaþverárklaustur og bjó á Múkaþverá og and- aðist þar 6. ágúst 1782. Kona hans var Málfrfður (-j- 1784) Jónsdóttir sýslumanns Jónssonar í Grenivík, systir þórarins sýslumanns á Grund; börn þeirra voru: Jón landlæknir, Jón sýslumaður í Suður-Múla- sýslu (A 50), Ingigerður kona þorkels stiptsprófasts Olafssonar á Hólum og Karftas kona Erlendar Múka- þverár klausturhaldara Hjálmarssonar. Æfisaga Sveins lögmanns er prentuð í Kph. 1791, sbr. lögmannatal Jóns Signrðssonar Nr. 132 í Safni til sögu íslands II, 156. 90. Vigfús Erichsen, fæddur á Hjálmholti í Flóa 9. febrúar 1790, sonur Árna Eiríkssonar, bónda þar — bróður Jóns konferenzráðs Eiríkssonar—og konu hans Margrjetar Magnúsdóttur prests í Villingaholti þór- hallasonar; útskrifaður úr Metrópólftanskólanum í Kaupmannahöfn 1811; cand. juris 11. janúar 1816 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann var alla æfi í Kaupmannahöfn embættislaus, fjekk kammerassess- ors nafnbót 18. september 1846 og andaðist 8. okt- óber s. á., ókvæntur og barnlaus.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.