Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 50
bólstað í Fljótshlíð Pálssonar; þéim varð eigi barna
auðið.
89. Sveinn Sölvason, fæddur á Stóru-Grund í Eyja-
firði 6. september 1722, sonur Sölva Tómassonar
Múkaþverár klausturhaldara og konu hans Halldóru
Jónsdóttur frá Tungu í Fljótum Sveinssonar; útskrif-
aður úr Hólaskóla 1740; cand. juris 20. febrúar 1742
með 1. einkunn. Með konungsbrjefi 30. marz s. á.
var hann skipuður varalögmaður norðan og vestan og
tók algjörlega við lögmannsdæminu 3. marz 1746,
þegar Hans lögmaður Becker andaðist. Hann sat í
í nefnd þeirri, er skipuð var með kgsúrsk. 23. maí
1755 til að aðgreina fjárhag biskupsstólanna og skól-
anna (Lovs. for Isl. V, 221, 568 og 579). Hann hjelt
og Múkaþverárklaustur og bjó á Múkaþverá og and-
aðist þar 6. ágúst 1782. Kona hans var Málfrfður
(-j- 1784) Jónsdóttir sýslumanns Jónssonar í Grenivík,
systir þórarins sýslumanns á Grund; börn þeirra
voru: Jón landlæknir, Jón sýslumaður í Suður-Múla-
sýslu (A 50), Ingigerður kona þorkels stiptsprófasts
Olafssonar á Hólum og Karftas kona Erlendar Múka-
þverár klausturhaldara Hjálmarssonar.
Æfisaga Sveins lögmanns er prentuð í Kph.
1791, sbr. lögmannatal Jóns Signrðssonar Nr. 132 í
Safni til sögu íslands II, 156.
90. Vigfús Erichsen, fæddur á Hjálmholti í Flóa 9.
febrúar 1790, sonur Árna Eiríkssonar, bónda þar —
bróður Jóns konferenzráðs Eiríkssonar—og konu hans
Margrjetar Magnúsdóttur prests í Villingaholti þór-
hallasonar; útskrifaður úr Metrópólftanskólanum í
Kaupmannahöfn 1811; cand. juris 11. janúar 1816
með 2. einkunn í báðum prófum. Hann var alla æfi
í Kaupmannahöfn embættislaus, fjekk kammerassess-
ors nafnbót 18. september 1846 og andaðist 8. okt-
óber s. á., ókvæntur og barnlaus.