Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 51
257
gi. Vigfús Jónsson, fæddur 1736, sonur Jóns Björns-
sonar á Eyrarlandi og konu hans Helgu Magnúsdótt-
ur frá Espihóli Björnssonar; útskrifaður úr Hólaskóla
1757; cand. juris 22. maí 1762 með 2. einkunn í báð-
um prófum. Hann var skipaður aðstoðarmaður Jóns
sýslumanns Benediktssonar í Júngeyjarsýslu 22. april
1766 með fyrirheiti um sýsluna eptir hann, og þegar
Jón sýslumaður andaðist, 28. apríl 1776, tók hann al-
gjörlega við sýslunni, en fjekk lausn frá embætti 31.
maí 1786 sökum geðveiki. Hann bjó á Hjeðinshöfða
og síðast á Sigurðarstöðum á Sljettu og andaðist þar
2. júní 1795. Kona hans var Halldóra Sæmundsdóttir
prests á þóroddsstað Jónssonar; þau áttu mörg börn;
einn af sonum þeirra var Guðbrandur lyfsali í Nesi
við Seltjörn.
92. VigfÚS Scheving. fæddur á Möðruvöllum f Hörg-
árdal 15. janúar 1735, sonur Hans Schevings Möðru-
valla klausturhaldara og konu hans Guðrúnar Vigfús-
dóttur frá Hofi á Höfðaströnd Gíslasonar; útskrifaður
úr Hólaskóla 1754; cand. juris 20. júní 1757 með 2.
einkunn. Eptir það var hann um tíma Hólastólsráðs-
maður og var settur fyrir Eyjafjarðarsýslu frá því að
þórarinn sýslumaður andaðist, 22.maii7Ó7, og þangað
til Jón sýslumaður Jakobsson tók við árið eptir. Hann
fjekk Skagafjarðarsýslu 21. febrúar 1772 og þjónaði
henni þangað til hann fjekk lausn frá embætti 21.
maí 1800. Hann bjó á Víðivöllum í Skagafirði, en
brá búi eptir að hann fjekk lausn frá embætti og fór
að Innra-Hólmi til Magnúsar konferenzráðs tengda-
sonar sins og andaðist hjá honum í Viðey 14. desem-
ber 1817. Vigfús sýslumaður átti Önnu (ý 30. oktbr.
1820) Stefánsdóttur prests á Höskuldsstöðum Ólafs-
sonar; börn þeirra voru: Ragnheiður kona Stefáns
amtmanns þórarinssonar, Guðrún kona Magnúsar kon-
17*