Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 52

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 52
258 ferenzráðs í Viðey, Stefán umboðshaldari á Ingjalds- hóli og Jónas sýslumaður á Leirá (A 51). Útfararminning’ hans er prentuð á Beitistöðum 1819. 93. Vigfús Thórarensen, fæddur að Möðruvöllum í Hörgárdal 1787, sonur Stefáns amtmanns pórarinsson- ar (A 87); útskrifaður úr heimaskóla af Steingrími biskupi Jónssyni 1804 ; cand. juris 6. október 1810 með 1. einkunn í báðum prófum. Hann komst síðan i kan- sellíið og varð undirkansellisti þar 20. apríl 1813 og kansellisti og kansellísekreteri að nafnbót 10. febrúar 1819, en fjekk lausn frá embætti 7. janúar 1823. Hann andaðist á St.. Hansspítala hjá Hróarskeldu 5. nóvem- ber 1843, ókvæntur og barnlaus. 94. Vigfús þórarinsson, fæddur á Stóru-Grund í Eyjafirði 1. maí 1756, albróðir Stefáns konferenzráðs (A 87); útskrifaður úr heimaskóla af Bjarna Jónssyni skólameistara i Skálholti 1775, cand. juris 28. júní 1781 með 1. einkunn. Með veitingarbrjefi 2. júlí 1781 var hann skipaður sýslumaður i Kjósarsýslu og hjeraðs- dómari í Gullbringusýslu (Lovs. for Isl. IV, 601) og bjó þar á Lágafelli, á Gufunesi og Brautarholti. Síð- an fjekk hann Rangárvallasýslu 10. júní 1789 og flutti sig þá að Hlíðarenda í Fljótshlið, og frá 7. qktóber 1812 þjónaði hann einnig Vestmannaeyjasýslu; 8. ágúst 1810 var hann sæmdur kansellíráðs nafnbót. Hann and- aðist á Hlíðarenda 13. april 1819. Kona hans var Stein- unn (ý 9. febr. 1828) Bjarnadóttir landlæknis Pálsson- ar, og voru þeirra börn: Bjami amtmaður (A 11), Ragnheiður fyrri kona sjera Gísla Gíslasonar síðast prests á Gilsbakka, Rannveig fyrst gipt þórarni Ofjörð (A 96) og siðan sjera Sveinbirni Sveinbjarnarsyni á Staðarhrauni, Guðrún fyrri kona sjera Sigurðar Thór- arensens í Hraungerði, Kristín kona Jóns prófasts Hall- dórssonar á Breiðabólstað í Fljótshlíð og Skúli kansellí- ráð og hjeraðslæknir á Móeiðarhvoli.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.