Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 58
264
embættinu frá 24. febrúar 1836 til 25. maí s. á. Hann
var sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar 10. júní
1841 og konferenzráðs nafnbót 8. júli 1848. Hann sat
i embættismannanefndinni í Reykjavik 1839 og 1841
og á alþingi 5 hin fyrstu þing sem konungkjörinn þing-
maður og var forseti þess 1847; sömuleiðis sat hann á
þjóðfundinum 1851 sem konungkjörinn þingmaður.
Hann var formaður nefndar þeirrar, er skipuð var sam-
kvæmt kgsúrsk. 23. apríl 1845 um landbúnaðar- og
skatta-mál íslands (Lovs. for Isl. XIII, 223, 233 og 318).
J>órður konferenzráð bjó i Hjálmholti i Flóa, á Nesi
við Seltjörn og síðast í Reykjavík og andaðist þar 20.
febrúar 1856. Hann var tvíkvæntur; fyrri kona hans
var Guðrún (-f* 11. nóv. 1838), ekkja Stefáns amtmanns
Stephensens (A 85); þeirra börn dóu ung. Seinni
kona hans var Kirstin (-j* 8. jan. 1874), dóttir Lárusar
Knudsens kaupmanns í Reykjavík; af þeirra börnum
komust til aldurs: Theódór læknir í Silkiborg á Jót-
landi; Sveinbjörn cand. theol. í Edinborg ; Árnabjarni,
fluttur til Ameríku ; Guðrún; Halldóra kona þórðar
verzlunarstjóra Guðjohnsens á Húsavik og Áróra kona
Christians greifa Trampe, póstafgreiðslumanns á Jót-
landi. Lárus yfirdómari Sveinbjörnsson er ættleiddur
sonur þórðar konferenzráðs.
101. þorkell Fjeldsted, fæddur á Felli í Sljettu-
hlíð 1740, sonur sjera Jóns Sigurðssonar, síðast prests
á Kvíabekk, og konu hans þorbjargar Jónsdóttur lög-
rjettumanns Jannessonar á Grund í Svínadal; útskrif-
aður úr Frúarskóla í Kaupmannahöfn 1758 og skrifað-
ur í stúdentatölu við háskólann 1762; cand. juris 1.
ágúst 1766 með 1. einkunn í báðum prófum. Hann
varð árið eptir málaflutningsmaður í hæstarjetti, 1769
lögmaður á Færeyjum, 1772 amtmaður í Finnmörk og
1778 á Borgundarhólmi, 1780 lögmaður á Kristjans-
sands lögstóli, 4. janúar 1786 stiptamtmaður í þránd-