Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 59
265
heimsstipti og amtmaður í frándheims amti, og loks
var hann 1796 skipaður einn af stjórnendum í aðal-
póststjórninni en andaðist í Kaupmannahöfn 19. nóvem-
ber s. á. jporkell Fjeldsteð var nefndarmaður í hinni
konunglegu nefnd, sem skipuð var með kgsúrsk. 20.
marz 1770 til að rannsaka hag íslands og koma með
uppástungur því til viðreisnar (Lovs. for Isl. III, 639.
654, 665 og IV, 34). Hann átti danska konu, og voru
þeir stiptamtmennirnir Pjetur Fjeldsted Hoppe og þ>or-
kell Abraham Hoppe dóttursynir hans.
102. þorlákur Isfjörð, fæddur 1748, sonurMagnús-
ar bónda Sigmundarsonar í Meiri-HHð í ísafjarðarsýslu
og konu hans Elínar Jónsdóttur bónda á Hóli í Bol-
ungarvík Egilssonar; útskrifaður úr Skálholtsskóla
1770 og skrifaður árið eptir í stúdentatölu við háskól-
ann; cand. juris 6. febrúar 1776 með 1. einkunn. Hann
varð s. á. lögsagnari Jóns sýslumanns Árnasonar í
Snæfellsnessýslu, og þegar Jón Árnason dó, árið eptir,
stóð hann fyrir sýslunni, þangað til Jón Amórsson tók
við; síðan fjekk hann Suður-Múlasýslu 9. febrúar 1778
(sbr. A 75) og andaðist þar 2. apríl 1781. Hann átti
Soffiu Erlendsdóttur sýslumanns í ísafjarðarsýslu Olafs-
sonar; þeirra böm voru: Kjartan ísfjörð kaupmaður,
og Charlotte fyrst gipt Henrik Henkel kaupmanni og
síðan Matthiesen general í danka landhernum.
103. þorleifur Nikulásson, fæddur 1732, sonurNiku-
lásar Magnússonar sýslumanns í Rangárvallasýslu og
og konu hans Rannveigar J>orsteinsdóttur prests á
Holti undir Eyjafjöllum Oddssonar; útskrifaður úr
Skálholtsskóla 1755; cand. juris 23. apríl 1762 með 3.
einkunn í hinu teóretiska og 2. einkunn í hinu prakt-
iska prófi. Hann varð varalandþingisskrifari 16. marz
1764 og gegndi því embætti úr því, en tók við því
fyrir fullt og allt, þegar Sigurður landþingisskrifari á
Hlíðarenda dó, 1780. þegar alþingi var af numið með