Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Síða 63
269
prests á Auðkúlu Björnssonar; útskrifaður úr Bessa-
staðaskóla 1809; var síðan um tíma við verzlun á
Höfðakaupstað, fór utan 1815 og tók próf í dönskum
lögum í janúar 1818 með 1. einkunn í báðum próf-
um. Hann var síðan á skrifstofu Gríms Johnssonar í
Skjelskör og Moltkes stiptamtmanns í Reykjavík og
fjekk Húnavatnssýslu 22.júní 1820; þjónaði hannhenni
til dauðadags. Hann var í embættismannanefndinni
1 Reykjavík 1839 og 1841 og sat á alþingi 1845 sem
konungkjörinn þingmaður. Hann bjó á Hvammi í
Vatnsdal og andaðist þar 23. júní 1846; en 26. júlí s.
á. var honum veitt kansellíráðs nafnbót. Kona hans
var Guðrún (•{■ 20. ág. 1864) þórðardóttir kaupmanns
á Akureyri Helgasonar, og voru þeirra börn: Lúðvíg
snikkari; Sigríður kona sjera Sigfúsar Jónssonar á
Tjörn á Vatnsnesi; sjera Jón á Hofi á Skagaströnd,
seinna kaupstjóri á Grafarósi; Benidikt umboðsmaður,
i Hvammi; Magnús, síðast settur sýslumaður í Rang-
árvallasýslu; þorlákur, siðast settur sýslumaður í ísa-
fjarðarsýslu; Gunnlaugur sýslumaður (A 25); Lárus
sýslumaður (A 58); Ágúst bóndi á Flögu; Jósef
verzlunarstjóri á Grafarósi og Páll hjeraðslæknir, í
Stafholtsey.
Æfisaga hans er prentuð i Rvik 1848.
4. Brynjólfur Svenzon. fæddur á Vogsósum 13.
júlí 1799, sonur sjera Benedikts Sveinssonar í Hraun-
gerði og konu hans Oddnýjar Helgadóttur bónda á
á Hliði á Álptanesi Jónssonar; útskrifaður úr Bessa-
staðaskóla 1823; var síðan nokkur ár skrifari hjá Bonne-
sen sýslumanni í Rangárvallasýslu, fór utan og tók próf
í dönskum lögum 3. maí 1831 með 1. einkunn í báð-
um prófum. Eptir það var hann um tíma ritari land-
fógeta í Reykjavík, varð sýslumaður í Barðastrandar-
sýslu 10. maí 1847 °g' síðan í Borgarijarðarsýslu 16.
maí 1850. Hann andaðist 14. nóvember 1851, ókvæntur.