Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Side 71
með i. einkunrj í báðum prófum; fjekk hann þá veit-
ingu fyrir Barðastrandarsýslu 22. júní s. á. pg setti
bú í Haga á Barðaströnd vorið eptir. 25. maí 1861
fjekk hann Borgarfjarðarsýslu og flutti sig þá að Leirá
og andaðist þar 8. marz 1868. Kona hans varKristín
(f 27. nóv, 1879) dóttir forvaldar umboðsmanns Sí-
vertsens í Hrappsey, og áttu þau 4 sonu; elztur þeirra
er þorvaldur kennari á Möðruvallaskólanum. Dóttir
Jóns Thóroddsens og Ólafar Hallgrímsdóttur prests á
Hrafnagili Thorlacíusar (sbr. A 18) er Elín kona Páls
Blöndals læknis í Borgarfirði.
Æfisaga hans er prentuð framan við „Maður og
kona“, Kmh. 1876.
17. Kristján Klingenberg Magnusen, fæddur á Skarði
á Skarðsströnd 5. desember 1801, sonur Skúla sýslu-
manns Magnússonar (B 25); útskrifaður úr heimaskóla
1824 af Helga biskupi Thordersen; exam. juris 2. maí
1827 með 1. einkunn í báðum prófum. Hann var síð-
an i rentukammerinu, þangað til hann fjekk veitingu
fyrir Snæfellsnessýslu 24. maí 1828, og bjó hann þar
á Narfeyri og Bjarnarhöfn; frá 1. september 1834 til
1. júní 1835 veitti hann vesturamtinu forstöðu í Qær-
vist Bjarna Thorsteinsonar. 7. október 1837 fjekk
hann veitingu fyrir Dalasýslu og tók við henni í næstu
fardögum og flutti sig þá að Skarði á Skarðsströnd;
jafnframt þjónaði hann Strandasýslu frá 8. júlí 1847
til fardaga 1849. Hann fjekk kammerráðs nafnbót
25. maí 1848, og 10. október 1859 fjekk hann lausn
frá embætti og andaðist á Skarði 3. júlí 1871. Hann
sat á alþingi 1845 °g 1849 sem þjóðkjörinn varaþing-
maður. Kona hans var Ingibjörg dóttir Ebenezers
sýslumanns (B 5), og börn þeirra: Ebenezer, Skúli á
Frakkanesi, Bogi timbursmiður, Elinborg kona sjera
Jónasar Guðmundssonar á Staðarhrauni og Kristín
kona Bövings hjeraðsfógeta í Danmörku.