Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 71

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 71
með i. einkunrj í báðum prófum; fjekk hann þá veit- ingu fyrir Barðastrandarsýslu 22. júní s. á. pg setti bú í Haga á Barðaströnd vorið eptir. 25. maí 1861 fjekk hann Borgarfjarðarsýslu og flutti sig þá að Leirá og andaðist þar 8. marz 1868. Kona hans varKristín (f 27. nóv, 1879) dóttir forvaldar umboðsmanns Sí- vertsens í Hrappsey, og áttu þau 4 sonu; elztur þeirra er þorvaldur kennari á Möðruvallaskólanum. Dóttir Jóns Thóroddsens og Ólafar Hallgrímsdóttur prests á Hrafnagili Thorlacíusar (sbr. A 18) er Elín kona Páls Blöndals læknis í Borgarfirði. Æfisaga hans er prentuð framan við „Maður og kona“, Kmh. 1876. 17. Kristján Klingenberg Magnusen, fæddur á Skarði á Skarðsströnd 5. desember 1801, sonur Skúla sýslu- manns Magnússonar (B 25); útskrifaður úr heimaskóla 1824 af Helga biskupi Thordersen; exam. juris 2. maí 1827 með 1. einkunn í báðum prófum. Hann var síð- an i rentukammerinu, þangað til hann fjekk veitingu fyrir Snæfellsnessýslu 24. maí 1828, og bjó hann þar á Narfeyri og Bjarnarhöfn; frá 1. september 1834 til 1. júní 1835 veitti hann vesturamtinu forstöðu í Qær- vist Bjarna Thorsteinsonar. 7. október 1837 fjekk hann veitingu fyrir Dalasýslu og tók við henni í næstu fardögum og flutti sig þá að Skarði á Skarðsströnd; jafnframt þjónaði hann Strandasýslu frá 8. júlí 1847 til fardaga 1849. Hann fjekk kammerráðs nafnbót 25. maí 1848, og 10. október 1859 fjekk hann lausn frá embætti og andaðist á Skarði 3. júlí 1871. Hann sat á alþingi 1845 °g 1849 sem þjóðkjörinn varaþing- maður. Kona hans var Ingibjörg dóttir Ebenezers sýslumanns (B 5), og börn þeirra: Ebenezer, Skúli á Frakkanesi, Bogi timbursmiður, Elinborg kona sjera Jónasar Guðmundssonar á Staðarhrauni og Kristín kona Bövings hjeraðsfógeta í Danmörku.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.