Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1886, Qupperneq 91
283
og loksins Lauritz Gottrup, er seinna var lögmaðr. 1684
kvaddi konungr Jóhann ásamt 2 öðrum dönskum mönnum
til að ganga í nefnd með þeim 3 Islendingum, er siglt
höfðu sumarið 1683 til að semja kaupskrána, og var því
kaupskrá þessi, sem konungr samþykkti 6. maí 1684, sett
af 6 mönnum. 1683 fór Jóhann héðan af landi, en 2 ár-
um seinna tók hann verzlun á Vatnaeyri og Bíldudal til
leigu um ð ár, og var hann þá orðinn assessor í commercie-
collegio. Hinn 2. apríl 1689 er hann andaðr, því að þá
fær kona hans verzlun þá, er maðr hennar hafði haft. Jó-
hann var maðr spakr og óáleitinn og líkaði Islendingum
að mörgu leyti allvel við hann.
4) Pdll Beyer var fyrst verzlunarþjónn hér á landi,
og getr hans fyrst á Bessastöðum 1695; var hann þá, ásamt
Jens Jörgenssyni, umboðsmaðr þar um eitt ár fyrir þá, er
landstekjurnar höfðu að leigu, en síðan tók Jens einn við.
En er óvildin milli Miillers amtmanns og Lauritz Gottrups
var orðinn að fullum fjandskap, kom amtmaðr til leiðar, að
Jens misti umboðið 1702 — hann átti systur Gottrups og
galt hann þess hjá amtmanni —, og fékk þá Páll Beyer
það. 1706 varð hann fógeti á Bessastöðum og tók við
tekjum konungs af landinu og stóð reikning af, því að þá
var tími þeirra á enda, er tekjurnar höfðu leigt. 1707
fékk Muller amtmaður leyfi til, að vera framvegis að stað-
aldri erlendis og tók hann þá Pál Beyer til að gegna em-
bætti sínu á Islandi, en stiptamtmaðr Gyldenlöve lét Odd
varalögmann vera erindisreka sinn, og vóru þeir Páll þann-
ig hinir æðstu valdamenn hér á landi og kallaðir »fullmekt-
ugir«. Komu þeir báðir á alþing 1708, og skiptu þá þann-
ig með sér völdum, að Oddr skyldi einn öllu ráða norðan-
lands og vestan fyrir beggja hönd, en Páll fyrir sunnan og
austan. Höfðu þeir völd þessi um 9 ár, og hefir sá tími
verið einn hinn róstumesti eptir siðbótina í stjórnarfari
landsins. f>eir Páll og Oddr vóru ofsamenn miklir, og þó
einkum Oddr, og drykkfeldir; veittu þeir á stundum sinn
hverjum sama embættið og stóð af ófriðr mikill. Sem
dæmi upp á athæfi embættismanna á þeim tímum má geta