Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1886, Qupperneq 98
290
guð sendir oss skarnið, eins og annað, og því ættum vér
þá ekki að taka við því eins og öðru?«. þetta er alveg
sama eins og sumir drykkjumenn segja, að guð hafi skap-
að brennivínið og því sé ekki neitt á móti að drekka það.
Um veturinn fengust þeir Prsehewalski við að rann-
saka Kynlyn og Altyn-tag; sá fjallgarður liggur norður
undir Gobi; þau héruð voru alveg ókunn áður; fann hann
þar 3 stórkostlega fjallgarða, sem eru meir en 20,000 feta
háir.
í febrúar og marz 1885 dvöldu þeir við Lob-nor; það
er allmikið vatn á eyðimörkunum norður af Altyn-tag; í
það vatn fellur Tarimfljótið; þau héruð hafði Prschewalski
rannsakað á hinum fyrri ferðum sínum. Perðalagið um
fjöllin var fjarska örðugt um há-vetur; frostið varð opt yfir
40° C; snæhríðar og sandstormar skiptust á. Gull fundu
þeir víða í fjöllunum. Um vorið 1885 rannsakaði Prsche-
walski alla fjallaröndina frá Lob-nor vestur til Khotan og
var það allt ókunnugt áður; síðan ætlaði hann aptur yfir
Kynlyn inn í Thibet, en það tókst ekki. Thibet er eitt
hið ókunnasta land á jörðunni, og þó hafa menn gjört sér
mikið far um að rannsaka það, bæði Rússar og Englend-
ingar, en Budda-prestarnir í Thibet eru svo magnaðir, að
engum hefir tekizt að skoða Iandið og engum að fara
þar um, nema þeim, sem farið hafa huldu höfði eins og
njósnarmenn. Prestarnir höfðu frétt til ferða Rússa og
vildu fyrir engan mun leyfa þeim að koma inn í landið.
Prschewalski ætlaði þó að reyna að fara þjóðveginn hjá
Kiria suður yfir fjöllin, en varð að hverfa frá, því þar var
búið að eyða öllum vegum, velta stórum björgum í göturn-
ar, brjóta brýrnar o. s. frv. Prschewalski varð nú að láta
sér nægja að skoða syðsta hlutann af Austur-Turkestan;
fann hann þar margt merkilegt, mörg merki um meiri
byggð áður á dögum, rústir af stórum borgum, gamla
skurði til vatnsveitinga o. fl., er sýndi, að landið hefur áð-
ur verið miklu betur ræktað. Síðan héldu þeir yfir Tur-
kestan þveran og komust í nóvember 1885 að vatninu
Issyk-kul, sem liggur í löndum Rússa; þaðan fór Prsche-