Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1886, Side 121
313
|>eir Holm fengu framan af þá hjálp og aðstoð, sem
þeir við þurftu hjá austanmörnnm þeim, er urðu samferða,
en brátt fóru þeir að týna tölunni og loks var ekki hægt
að fá neinn þeirra til að halda áfram; þeir vildu fá Holm
til að setjast að hjá sér og verzla við sig. |>egar hann
sá, að eigi var hægt að fá neinn til samfylgdar, fór hann
á stað og hafði nú að eins 3 konur grænlenzkar til að róa
hverjum bát; veður voru ill og stormasöm, og rekaís fram
með landi á harðri ferð; daginn eptir komu þó bátar austan-
manna á eptir þeim; þeir höfðu ekki getað slitið sig frá
varningi Holms og öllu því góðgæti, sem þeir félagar höfðu
meðferðis; þetta var nú góð hjálp um stund, en þegar
þeir voru komnir norður undir Gyldenlöves-fjörð, á 64°,
fóru þeir allir frá honum aptur, því þar þrýtur . Skræl-
ingjabyggðin syðri á austurströndinni; þó tókst Holm á
endanum að fá einn bátseiganda til þess að fylgja sér til
nyrðri byggðar; hafði Holm lofað honum nýrri byssu og
öðrum kjörgripum. Norðurferðin var fjarska-örðug; ofviðrin
voru ógurleg, og allt af sífelld barátta við ís og ósjó; tvær
af- róðrarkonunum urðu veikar, svo að ekki horfðist væn-
lega á; land er þar ákaflega hrjóstugt, klettar og klungur,
skriðjöklar og sker fyrir landi; 20. ágúst komu þeir Holm
norður á Dannebrogsey og fundu vörðuna, sem Graah
byggði þar fyrir rúmum 50 árum; ~var hún alveg heil og
ósködduð. Allt var ókunnugt þar fyrir norðan, og héldu
þeir enn öruggir áfram, þó torfærurn'ar væru gífurlegar. A
fjörðunum fyrir norðan Dannebrogsey urðu þeir fyrir mestu
hrakningum, og lá við sjálft hvað eptir annað, að bátarnir
mundu týnast. Loks komust þeir 30. ágúst 1884 til Sermi-
lik; það er syðst í Skrælingjabyggðinni nyrðri; síðan héldu
þeir enn lengra norður til að skoða landið og komust norð-
ur á 66° 8' n. br. þenna hluta strandarinnar kölluðu
þeir Kristjánsland hins níunda; nyrztu eyjarnar, sem
þeir fundu, nefndu þeir eptir Biríki rauða og Leifi heppna.
Tóku þeir sér vetrarsetu þar sem heitir Tasiusarsik;
bjuggu þar 50 Skrælingjar; gerðu þeir Holm sér hús til
vetrarvistar og athuguðu veðurlag og segulmagn jarðar um