Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Page 2

Eimreiðin - 01.01.1895, Page 2
2 Og meðan hin kolsvörtu miðalda ský sem myrkur á heiðunum lágu, var huggunin einasta hörmunum í að hetja sinn anda að landinu því — þar brostu við tindarnir bláu. Það voru þau fjarlægu framtíðar lönd, sem faðminn við kappanum breiddu, er klerkarnir Helviti hótuðu’ hans önd og harðstjórans skósveinar ráku’ hann í bönd og dæmdan að logunum leiddu. Þú töfraðir hetjurnar, ókomna öld, og enn þá er svipur þinn fagur, er hver maður þorir að þekkja sinn skjöld og þarf ekki að krjúpa við gull eða völd. O, það verður dýrðlegur dagur. Og þá verður himininn heiður og skær, því hann er þá kominn til valda, sem engan vill neyða, sem öllurn er kær, sem elskar hvert hjarta sem lifandi slær, og þarf ekki’ á Helvíti’ að halda. Pá verða’ ekki smælingjum veðrin svo hörð og vistin svo nöpur á fjöllum, því skjól hefur fundið in húslausa hjörð, og hún er þá blíðari, móðir vor, jörð, og blessuð af börnunum öllum. Og væri ekki gaman að vakna’ upp á ný og vera á þeim gullaldar-dögum, er hver maður segir: að þýið sje þý og þarf ekki að bannfærast kirkjunum í, nje hengjast að hegningarlögum. Jeg sje þessa fjarlægu fagnaðar stund, er fólkið af hæðunum brunar og horfir þar loks yfir hauður og sund og heilsar þjer ástkæra, margþreyða grund, og ópið í dölunum dunar.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.