Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Side 13

Eimreiðin - 01.01.1895, Side 13
i3 ekki skjátlast mikið í því. Sauðarverðið mundi reynast honum sem frækorn, er sáð væri í frjósaman akur og gæfi margfalda uppskeru. Tökunt eitt einasta dæmi. Bóndi í Húnavatns- eða Skagafjarðarsýslu þarf nauðsynlega að bregða sjer suður til Reykjavíkur um túnaslátt- inn. Hann verður þá annaðhvort að fara landveg með marga hesta og vera burtu 'frá heimilinu að minnsta kosti vikutíma, eða, ef hann er hestalítill eða heilsutæpur, með strandferðaskipinu og flækjast með því hringinn í kring um landið og vera hjer um bil viku á skipsfjöl hverja leið. Hvað skyldi nú slíkt ferðalag kosta hann um hásláttinn? En lægi nú járnbraut norður um land milli Reykjavíkur og Akureyrar, þá gæti hann, ef eimlestin væri nokkurn veginn hraðgeng, komizt til Reykjavíkur á hálfum degi, og komi eimlestin hvergi við, jafnvel á fáeinum klukkustundum. Skyldi hann ekki verða búinn að fá sauðarverð það, sem hann hefði lagt í járnbrautina, borgað að fullu eptir fyrstu ferðina? En það er varla hætt við því, að á nýjum skatti þurfi að halda. Landssjóður getur borið kostnaðinn, ef rjett er að farið. Ef öllu því fje, sem ætlað er til þjóðvega, er varið til járnbrauta, verða hin nýju útgjöld til þeirra ekki svo ýkjamikil. Auk þess mundi lands- sjóði sparast annar kostnaður, er járnbraut væri lögð norður um land, nefnilega tii strandferða. Allar liringferðir mundu þá reynast óþarfar og falla burt af sjálfu sjer. ÍM hver ætli vildi vera að hringsóla með strandferðaskipi millum Suðurlands og Norðurlands, þegar hann gæti komizt á járnbraut á margfalt skemmri tima og fyrir minna verð ? Hin nýja stefna í samgöngumáli voru ætti því að vera þessi: i) A landi: 2 aðaljárnbrautir, önnur frá Reykjavík austur í Arness- og Rangárvallasýslur, hin norður um land til Akureyrar. Ut frá þeim smábrautir, þriðjungsbrautir, sporbrautir eða akbrautir. 2) A sjó: Tíðari skipaferðir milli íslands og útlanda, einkum Englands. Smá- skip með ströndum fram, eitt frá Reykjavík til Austurlandsins, annað til Vesturlandsins, en engar hringferðir. Auk þess að minnsta kosti einn gufubátur í hverjum landsijórðungi, einn á Suðurlandi, annar á Vestfjörðum, þriðji fyrir Norðurlandi, tjórði á Austfjörðum. Þetta er það takmark, sem við ættum að keppa að fyrst um sinn, og þegar því væri náð, mætti fyrst segja, að samgöngur vorar væru komnar í viðunanlegt horf. Þá mundi líka auðmagn landsins skjótt aukast svo, að hægt væri að halda lengra áfram í sömu stefnu. En skorti oss þor og þrek til að leggja út í þann kostnað, sem

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.