Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Page 63

Eimreiðin - 01.01.1895, Page 63
é3 í eptirdragi og hrópa og æpa allt hvaö af tekur til að vekja athygli manna. Þykir sá bera ægiskjöld yfir öllum, er ámátlegast getur hrópað. Er mesta kvalræði að heyra þetta daginn út og daginn inn, en þó kastar fyrst tólfunum, er nokkrum hræðurn ægir saman í einu stræti, því þar syngur hver með sínu nefi. Syngur einn kola sínum og þyrsklingi lof og dýrð i hvellum rómi, annar tónar pistil sinn um grænkál og blóm- kál með dimmri og draugslegri rödd, en tannlausar og skjálfraddaðar kerl- ingar reka lestina og þeyta i skrækum og hvinandi tón lofsöng um síld og ál á titrandi raddbylgjum inn um opná gluggana. Er eigi furða þótt aðkomumönnum verði eigi svefnsamt hjer fyrstu morgnana og óski hyski þessu norður og niður. Eptir þvi sem á liður daginn eykst umferðin; vagnar þjóta fram og aptur um strætin i ýmsar áttir og lætur umferð þeirra allt annað en vel í eyrum þeirra, er óvanir eru sliku. Ymislegt er það á strætum úti, er vekur athygli vora, og er eitt meðal annars barnamergðin, einkum í smástrætunum. Litur helzt út fyrir, að Kaupmannahafnarbúar, fátækling- arnir eigi hvað sizt, hafi fengið samskonar fyrirheiti og Abraham, því vel má um þá segja, að niðjar þeirra sjeu eins og sandkorn á sjávar- ströndu. Krakkarnir mora frarn úr öllum. krókurn og kimum og kjallara- hálsum og velta um strætin eins og brimalda með orgi og illum látum. Skipar allmargt af þessu dóti þegar á unga aldri flokk með föntum og fúlmennum, þvi ekki er svo sem að tvfla uppeldið. Pá er hundavað- urinn. Er svo að sjá sem Kaupmannahöfn sje helgur griðastaður öllum hundum, eins og kirkjur voru flóttamönnum á fyrri öldum. Leita hundar þangað úr ýmsum áttum á líkan hátt og menn af ýmsum þjóðurn leita til Vesturheims. Má þar lita hunda af ýmsu tagi, bæði stóra og litla, ljóta og fallega, grimma og meinlausa, skynsama og vitlausa, og öllum regnbogans litum bregður fyrir meðal þeirra; þá eru nokkrir, sem draga á eptir sjer langa drösulróu, og aptur aðrir róulausir, eyrnalausir og mjer liggur við að segja hauslausir. Sumir eru lubbalegir og óþrifalegir og illa til fara, en aðrir stroknir og þvegnir og kliptir og kembdir með silkibönd um hálsinn og á rauðum og bláum flöjelssloppum. Er það unun ýmsra rneðal kvennþjóðarinnar, er eigi hafa neitt fyrir stafni, að dekra við hunda sína sjer til afþrejdngar. Njóta þeir sumir hverjir meira ástfósturs en börnin. Um hádegisbilið er allt á fleygiferð um strætin og er nú eigi laust við, að það sje hálfgert hættuspil að vera á ferli, eigi sizt fyrir viðvan- inga eins og vjer Islendingar erum fyrst í stað, er vjer komum til Hafnar. Veit aðkomumaður eigi hótið af fyrri en vagn er kominn á hæla honum, og snari hann sjer undan, er það engum efa bundið, að þegar í stað er annar kominn svo nærri, að hestarnir stinga votri snopp- unni framan í hann; taki hann svo loks í dauðans ofboði til fótanna til að forða lífinu, er það segin saga, að hann anar beint í fangið á karli eða kerlingu með vagn i eptirdragi, og á hann þar óbliðar kveðjur í vændum. Allt hrópar hyskið »varsko!«, sem kvað eiga að þýða »varaðu þig!«, en bæði jeg og margir aðrir góðir menn tóku það lengi vel fyrir »veskú« og þótti óþarfa kurteisi; eigi nennir heldur hyskið að hrópa fyrri en í síðustu lög og að því er komið, að maður verði fótum troð- inn. Er það alltítt, að menn sjeu keyrðir undir, einkum börn og gamal-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.