Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Page 67

Eimreiðin - 01.01.1895, Page 67
67 pungt höfuð en ljetta pyngju, í fylgd með einhverri kvennsniptinni og situr eptir næsta dag með sárt ennið og mórauða samvizkuna. Alloptast ganga menn nú til sængur, en titt er það og, að víga- móður komi í suma, og ganga þeir á stundum berserksgang urn strætin og bölsótast þar til lögreglan nær taki á þeim og varpar þeim í dýflissu eða rekur þá heim. Stundum fer og svo, að hjónaleysi þau, er á drykkju- stofunum sitja, verða saupsátt, er út á strætið kemur, og snýst þá tvi- menningsdrykkjan í áflog og illdeilur, er eigi aðeins leiðir af sjer glóð- araugu og margs kyns meiðsli, heldur og þungar sektir. Ykkur kann nú ef til vill, góðir hálsar, að virðast svo sem allt þetta sje lítils um vert, og sumt hvert þess efnis, að rjettast væri að fella það undan. En eigi er þvi svo varið að minni hyggju. fetta er sú hlið Hafnarlífsins, er fyrst verður fyrir, og segja verður hverja sögu sem hún gengur. II. Eitt af því, sem mest einkennir Kaupmannahöfn og aðra stórbæi i augum þeirra, er óframaðir eru og litilsigldir, er hinn rnikli mismunur hvað lifskjör manna snertir. A milli hinna ýmsu stjetta er rnikið djúp staðfest. I einu strætinu gnæfa grunnmúraðar skrautbyggingar við himni, og er þar ekkert til sparað, er prýða má. Silkiklæddir skrautvagnar með silspikuðum eldishestum fyrir renna þar eptir akbrautinni, og vagnstjórar þeir og þjónar, er á háþrepum vagnanna sitja, eru alsettir gylltum hnöpp- um eins og festing himinsins er þakin stjörnum á heiðskíru vetrarkvöldi, og silfurtengsli eru fest á kjólkraga þeirra og errnar. Skipa þeir þetta tignarsæti sitt með reigingssvip, eins og sætu þeir á konungsstóli, og líta fyrirlitlega til vesalinga þeirra, er staulast verða urn strætin á tveimur jafnfljótum. Að baki hinum miklu spegilfáguðu rúðum skrautbúðanna blika fyrir sjónum gull og gersimar, pell og purpuri og dýrindis djásn, í stuttu máli allt það, er hugur manns má girnast. Verði manni nú litið fyrir næsta strætishorn, fer opt svo, að þar tekur við önnur sjón og ólík. Húsin eru hrörleg og hokin, skökk og svipljót. Kolsvartir kjallarahálsar blasa við eins og gapandi gin og er þar útsala á ýmsu drösli og dóti, er furðu sætir að nokkur skuli vilja nýta. Kennir þar opt margra grasa. Til ginningar hanga þar frammi bæði inni og úti fyrir gamlar og bættar flíkur, stígvjelabullur, sokkaplögg, járnrusl og margt annað fleira. Á stundum leggur ódaun mikinn úr kjallaraholum þessum og blandast hann stækjunni af skolpi þvi, er strætisbúar hella i rennusteininn. Börn i ýmsum aldri í gauðrifnum flíkum, berhöfðuð og berfætt, með kláða og kaun af óþrifum ana fram og aptur um strætið með orgi og óhljóðum. Endur og sinnum koma mæður þeirra, jafn óþrifalega til fara, frarn í húsdyrnar eða kjallarahálsana til að lita eptir þeim. Má þannig í skjótu yfirliti ljóslega sjá merki þess, hve misjafnlega lukkunnar gæðum er niður skipt. Árstekjur nokkurra Kaupmannahafnarbúa nema svo hundruðum þús- unda króna skiptir, en fjölda margra svo tugum þúsunda skiptir. Er það segin saga, að auðkýfingar þessir berast mikið á, og lifa margir þeirra »hvern dag í vellystingum praktuglega«. Ber eigi nauðsyn til 5*

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.