Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Qupperneq 68

Eimreiðin - 01.01.1895, Qupperneq 68
68 fyrir þá aö neita sjer um nokkuð það, er stuðla má til þess að gera lifið þægilegt og unaðsríkt. Öðru hvoru gengur á heimboðum og stór- veizlum meðal þeirra, er kosta svo þúsundum króna skiptir. Lætur húsráðandi nokkru fyrir veizludaginn boð út ganga til vina sinna og vandamanna ritað á ilmandi brjefspjöld. Veizludaginn sjálfan renna þeir sílspikuðu hver á fætur öðrum með vagnana fyrir dyrr skrauthússins, og út úr vögnunum skreiðast spikfeitir istrubelgir, er skjögra á beinunum af ofáti og ofdrykkju; svipar þeim eigi alllítið til troðfylltra peningapoka, enda er þar náið nef augum. I kjölfari þeirra má lita ljettfættar Mómarósir skreyttar gulli og gimsteinum, berar niður á brjóst og með snjóhvítar axlir og háls af dustinu, er þær strá yfir hörund sjer til fegurðarauka. Pegar inn i fordyri hússins kemur, eru þar þjónar til taks, er fletta gesti yfirklæðum, en þeir halda að svo búnu inn í hina fagurtjölduðu sali og kasta kveðju á húsráðanda. Er hjer ekkert sparað, er til yndis og ánægju má verða. Gólfin eru þakin mjúkum, þykkum ábreiðum, veggirnir eru alskipaðir fögrum litmyndum, er sumar hverjar eru nafnkunn listaverk, í gluggum og hornum er alsett litfögrum og ilmandi skrautblómum og mjúk silkiklædd hægindi bjóða til hvildar. Innan um blómskrautið sjer til og frá á dýrindis höggmyndir úr marmara. Yfir alla þessa dýrð dreifa rafmagnslamparnir snjóhvítu töfraljósi og þykir það stórum prýða. Þegar kveðjur era afstaðnar og inngangsseremóníum lokið, setjast gestir til borðs, og eru fram bornar margskyns krásir og gómsæt vín; gerist hjer sannmæli það, er í æfintýrunum gömlu stendur, að þar eru bæði pipraðir páfuglar og saltaðir sjófiskar og píment og klaret, og leikið er þar á sýmfón og salterium gestum til ununar. Við disk hvern liggur brjefspjald og eru þar á skráðir rjettir þeir, er á borðum verða; er þetta vist til þess ætlað, að gera boðsfólki aðvart, svo eigi gleypi það í sig allt of mikið þegar í byrjun, en ætli sjer af, þvi rjettirnir eru margir. Meðal gestanna rikir glaumur og gleði og þó allt hæfilegt; verður hjer allt að vera innan vissra takmarka, þvi tízkan er vægðarlaus siðameistari og setur hverjum einurn meðal hinna æðri stjetta strangar lifernisreglur, er eigi má út af bregða. Æskulýðurinn iðar í skinninu af fjöri og kæti og er hjer fátt til að hepta gleðina, því eigi þarf að bera áhyggju fyrir morgundeginum. Fram eptir allri nóttu ómar hljóðfæraslátturinn og eptir gólfinu svifa þessi óskabörn hamingjunnar óstöðvandi i hring eins og stjörnur i sólkerfinu, og ungmennin þrýsta meyjunum fastar og fastar i faðm sjer; roði færist um kinnarnar, sigurbros leikur um varirnar og að baki svanadúns'bryddum blævængjunum tindra augun djúp og snörp. Svifa þau þannig i algleymingi og hirða hvorki um himin nje jörð, en aðeins um stundina, sem er að líða. En meðan óskabörn þessi teyga bikar lifsins í fullum mæli , dragast margir fáklæddir vesalingarnir, er hvergi eiga höfði sinu að að halla, um strætin í hiyssingnum og kuld- anum og stara með sultarsvip upp á skinandi Ijóshafið. Alltitt er það, að auðkýfingar borgarinnar eigi sjer stórbýli og skrauthús út um land og flytja þeir þangað, er vora tekur og litt er viðunandi í borginni fyrir sakir hita og svækju. Pað er og alsiða, að þeir á sumrum eða öðrum tima árs taki sjer ferð á hendur til útlanda og dvelji þar skemmri eða lengri tíma til skemmtunar og tilbreytingar. Skraut þessara stjetta i klæðaburði keyrir fram úr öllu hófi, og mætti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.