Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 76

Eimreiðin - 01.01.1895, Síða 76
7 6 fslenzk efni (í »VerhcindlungC'H dcr Bcrliucr (itithropologischcn Gcscllschcijtt-). Það er sama konan, sem áður hefur svo prýðilega þýtt meginið af »íslenzkum þjóð- sögum«, »Sigurð formann« eptir Gest Pálsson, úrval ur ljóðmælum hinna helztu íslenzku skálda o. fl. Á síðastliðnum vetri hefur og cand. mag. Carl Kúchler í Leipzig bæði þýtt »Leidd i kirkju« eptir Þorgils gjallanda (í sLeipziger Litteratur- Berichte«, 20. nóv. 1894, bls. 226—30) og »Vordraumur« eptir Gest Pálsson (í >>Aus fremden Zungen«, 1. h. 1895, bls. 39—50) og enn fremur ritað langa ritgerð um hinn nýrri sagnaskáidskap íslendinga (í slnternationale Litteraturberichte«, nr. 27— 31, 1894). í ritgerð þessari lýkur hann miklu lofsorði á ýms sagnaskáld vor, eink- um Jónas Hallgrímsson, Jón Thóroddsen og Gest Pálsson, sem hann segir að hafi verið gæddur svo framúrskarandi hæfileikum sem sagnaskáld, að fáa geti jafnoka hans í þeirri grein í bókmenntum alls hins menntaða heims (seinem Tálente, wie nur selten eines unter den Prosadichtern sámtlicher literarisch thátigen Nationen aufgetreten ist«). , Þótt enginn vafi sje á því, að bæði þessir þrír skáld- sagnahöfundar og fleiri aðrir eigi lof skilið, er þó ekki laust við, að oss finnist Kúchler gera heldur mikið úr þeim, og sumt af því, sem hann getur um, hefði alls eigi átt að nefna á nafn, t. d. »Sveitalífið« eptir Baldvin Jónatansson o. fl. Kúchler hefur áður ritað ýmsar vingjamlegar greinar um Island og meðal annars þýtt »Kærleiksheimilið« eptir Gest Pálsson. Kom 1. útg. af þeirri þýðingu út í Khöfn árið 1891, en 2. útg. í Leipzig 1894. Eptir 1. útg. hefur sögunni svo aptur verið snúið á hoflenzku af dr. H. C. Muller og kom sú þýðing út í Dor- trecht 1893 (í »Europa« bls. 122—162). Á Skotlandi hefur W. A. Craigie, kennari við háskólann í St. Andrews, þýtt nokkrar íslenzkar þjóðsögur á ensku (í »The Yelloiu Fairy Book«, London 1894). Svo virðist sem Frakkar ætli nú líka að fara að taka eptir bókmenntum vorum. Á það bendir grein, sem stóð í einu hinu helzta Parísarblaði, Journal des Débats, 28. des. 1894. Sú grein hljóðar svo: »Þótt bókmenntir Norðurlanda sjeu mjög farnar að ryðja sjer til rúms hjá oss, þekkjum vjer þó enn eigi bókmenntir íslendinga. Þær eru þó til og er alls eigi örvænt að við fáum líka að sjá þær á sínum tíma. Satt að segja eru þær líka skynsamlegri en bókmenntir Norðmanna og Svía. Hinar ákaflegu fjarstæður Strindbergs hafa ekki enn náð fótfestu þar. Auk þess er þar mest ort af ljóð- mælum, sem jafnan hafa á sjer sjerstaklega íslenzkt snið. Öndvegis-öldungur íslenzkra skálda er kennari í gömlu málunum við latínuskólann í Reykjavík og njóta rit hans ffábærrar alþýðuhylli á fósturjörð hans. Hann heitir (Stgr.) Thor- steinsson og er fæddur árið 1830. Hann hefur þýtt fyrir landa sína mikinn fjölda útlendra rita, eptir Shakespeare, Bvron, Goethe o. s. frv. Hann kveður einkum um hina dapurlegu og hrikalegu náttúru, um fósturjörðina og frelsið: »Og ánauð vjer hötum, því andinn er frjáls, hvort orðum hann verst eða sverðunum stáls.. .« Honum er mjög tamt að lofa hreysti hinna fomu íslendinga; hann yrkir líka heimsádeilukvæði. Rit hans hafa flogið út t'fir hafið og eru gefin út í Kaup- mannahöfn. Annars virðist sem Khöfn sje hinn andlegi höfuðstaður íslenzkra skálda. Þar hafa tveir rithöfundar, sem eru vngri en Thorsteinsson, aflað sjer andlegs menningarþroska (sont formés), þeir Hannes Hafstein og Einar Hjörleifsson. Hinn fymefndi fetar trúlega í lótspor Thorsteinssonar bæði að því er snertir val á yrkis- efni og framsetning; ljóðmæli hins síðarnefnda eru meira sorgblandin og við- kvæmari. Þótt hann ynni sveitum fósturjarðar sinnar, hefur hann þó yfirgefið hana og flutzt til Ameríku og gefur þar út íslenzkt blað í Winnipeg. Smásögu

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.