Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Side 4

Eimreiðin - 01.01.1909, Side 4
4 síðd.) og þar að auki lásu kennararnir með piltum, einkum þeim sem voru lengra á veg komnir eða höfðu sérstaklega mikinn áhuga á einhverri námsgrein. Var því lítill tími til heimavinnu. Flestir voru nemendurnir lítt undirbúnir og alltoft með óbeit á bókum og bóknámi frá barnaskólaárunum. Fyrirlestrarnir áttu að hressa og fjörga þá og útrýma óþægilegum endurminningum um utanaðlærdóminn. Tækist það, þá var verkið hálfnað. Næsta stigið var að kenna nemendunum að vinna upp á eigin spýtur, og til þess voru samtalstímarnir ætlaðir. Kennarinn fór þá gegnum það, sem hann hafði sagt í fyrirlestrunum, eða piltar lesið sjálfir. Hann hlýddi þeim ekki yfir, en ritjaði upp aðalatriðin. Hver kom þá með það, sem hann mundi og hafði tekið eftir; samtalið leidd- ist þá orð af orði, en kæmi það altof langt frá efninu, sveigði kennarinn inn á brautina að nýju, minti á sumt af því, sem gleymst hafði, og útskýrði nánar það torskildasta. I samtalstímunum áttu kennararnir hægast með að kynnast nemendunum, uppgötva í þeim það bezta og sérkennilegasta og reyna síðan að hjálpa þeim til að þroskast samkvæmt eðli og náttúrugáfum. Meginþátturinn í kenslunni voru fyrirlestrar Schröders í sögu og goðafræði. Sagan var uppeldismeðal, skuggsjá, þar sem myndir mikilla manna og eftirbreytnisverðra liðu fyrir augu tilheyrendanna og hvöttu þá fram til drengskapar og dáða. Goðasagnir Norður- landa voru Schröder kærastar allra umtalsefna. Pað var líf hans og yndi að segja frá Óðni, Pór og Loka »eina stjórnvitringnum í Ásgarði«, en ekki voru ský'ringar hans ætíð nærri anda fornaldar- innar. Pað vissi hann líka sjálfur, en sagnirnar voru honum meðal en ekki takmark, meðal til að búa hugsanir sínar þannig, að til- heyrendurnir skildu þær og geymdu. Langoftast snerust því þessar ræður um áhugamál samtíðarinnar, eða hann beindi líking- unum til unglinganna, varaði þá við hættunum og vísaði þeim veginn áfram til starfsemi og menningar. Goðafræðin var sífelt skotspónn allra lýðskólafénda. »Hvað varðar unglingana nú um Mjölni, hár Sifjar eða Suttungamjöð« sögðu þeir. En lærisvein- arnir sjálfir voru hrifnir af þessum ræðum og þegar alt annað var gleymt, sem þeir höfðu lært í Askóv, þá mundu þeir nokkuð af þeim og mintust þeirra á gamals aldri með tár í augum, því það var brot af sál kennarans, sem þeir höfðu eignast þar. Askóv óx smátt og smátt, en þó þótti Schröder skólinn sér of þröngur verkahringur. Hann vildi bera »fagnaðarboðskap«

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.