Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 74

Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 74
74 Aldrei hefur höf. náð lengra en í þessari bók. Snildarlegri lýsing á sálarlífi, unaðslegra mál er ekki á nokkurri jafnlangri íslenzkri skáld- sögu. Honum er altaf að fara fram. »Ofurefli« er sómi fyrir bók- mentir lands vors og ætti að þýðast á útlend mál. Jón Trausti þekkir út í hörgul nístandi fátækt, skínandi volæði, öreiga eymd, eins og þessi þokkahjú eru heima fyrir. Og af hve miklu þreki, hve mikilli þolinmæði er barist við þau, hve þrautgóðir Islendingar geta reynst. Það er fáum gefið, að geta sagt svo frá fátæktinni, að hún sé ekki lengur fátækleg, heldur eins og vér sjáum sjálfa oss í spegli og tökum þátt í öllu, sem gerist í kotinu. Og svo sýnir höf. okkur, hvernig fátæktin býr í skauti hinnar íslenzku náttúru, sem er eins dýrðleg og hún var á gullöld vorri, og vill að við förum í landaleitir á landi sjálfra okkar, sem vér þekkjum of lítið. Hafi hann þökk fyrir. Sjálfur hefur hann fundið nýtt land og kannað það. Eins nákvæmlega og innilega og hann hefur lýst íslenzku hjáleigulífi, uppi í fjalldölum, hefur enginn lýst því áður. Honum hefur farið fram stórum síðan hann ritaði næst á undan Ef hann heldur áfram að stíga svo stór spor milli hverrar skáldsögu, sem hann skrifar, þá kemst hann fram úr mörgum. Það er gleðiefni að ísland skuli eigi tvo höfunda, sem rita slíkar skáldsögur, sem þessar, er hér er getið. J. St. ÞORV. THÓRODDSEN; LÝSING ÍSLANDS, I, 2. Khöfn 1908. Með þessu hefti er lokið 1. bindinu af íslandslýsingunni, sem vér gátum í fyrra (Eimr. XIV, 145), og er svipað um það að segja og fyrsta heftið að því er fróðleik og frágang snertir. Er hér lýsing á aðalhálendi íslands og síðan á landslagi umhverfis land alt upp frá ströndunum og að því loknu lýsing á ám og stöðuvötnum hvarvetna á landinu. í heftinu eru 37 myndir til skýringar, og eru þær að vísu góðra gjalda verðar, en hefðu þó bæði mátt vera fleiri og stærri, og sérstaklega hefðu þar þurft að vera fleiri afstöðu-uppdrættir af ýmsum stöðum og landssvæðum, og virðist sem of mjög sé horft í kostnaðinn 1 þeim efnum. V. G. VETRARBRAUTIN. Tímarit til skemtunar og fróðleiks. I. ísafirði 1908. Tímarit þetta á að koma út í 2—4 heftum á vetri, hvert 4—>5 arkir að stærð í litlu broti. Það ætlar að flytja sögur, kvæði, ritgerðir, þjóðsögur, skrítlur o. fl. — Fyrsta heftið, sem oss hefir verið sent, er mjög fjölbreytt að efni, og ekki óskemtilegt aflestrar, en annars fremur tilkomulítið og fjarri því að vera kostafæða. Hinn ytri frágangur (prentun, pappír og prófarkalestur) er og harla bágborinn. — En öll frumsmíð stendur til bóta, og má vera, að framhaldið verði vandaðra. og gæti þetta rit þá orðið allvel fallið til að stytta mönnum stundir í skammdeginu. V. G. ÁRAMÓT. IV. ár. Winnipeg 1908. í þessum árg. Áramóta eru átta ritgerðir og allar allmerkilegar, hver á sinn hátt. Fyrst er þar »Ritstjóraspjall« eftir ritstjórann, séra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.