Eimreiðin - 01.01.1909, Blaðsíða 66
66
Ritsj á.
f’ORVALDUR THORODDSEN: ÆFISAGA PJETURS PJETURS-
SONAR, Dr. theol., biskups yfir Islandi. Rvík 1908. 8° (IV -)- 349
bls.) Með myndum.
Sú var tíðin að íslenzkum fróðleiksmönnum þótti gaman að því
að rita æfisögur merkra manna. Þá voru ritaðar íslendingasögur og
Noregskonungasögur. En svo lagðist þetta niður að miklu leyti, og
þær æfisögur, er síðar hafa verið skráðar, eru hvorki margar né miklar.
En heiður sé hverjum þeim manni, sem eykur þá grein 1 bókmentum
vorum, sem við erum frægastir af. Hér er komið nýtt rit og merki-
legt í hópinn, og því skylt að athuga það vandlega.
Bókin er gefin út á 100 ára afmæli Péturs biskups, og mun hann
hinn fyrsti íslendingur, er hefur hlotið þann sóma, að svo mikið rit
hafi verið skrifað við þesskonar tækifæri —■ á síðari tímum hafa menn
vanálega látið sér nægja stuttar tímaritsgreinar eða jafnvel blaðagreinar
til að minnast aldarafmæla helztu merkismanna þjóðarinnar, — fyrir-
lestur, sem svo hefur verið gefinn út í pésaformi, þegar vel hefur
verið.
Pétri biskupi er lýst mjög ýtarlega í þessari bók. Fyrst er rakin
ætt hans, og er í þeim kafla meðal annars margt fróðlegt um Pétur
prófast á Víðivöllum, föður hans, er var hinn mesti ágætismaður. Þá
er sagt frá námsárum hans á Bessastöðum og svo lýst starfi hans
sem prests á Helgafelli og Staðastað 1837—1847 og hluttöku hans
í »Ársriti presta í f>órsnesþingi«. fá kemur kafli um utanferðir hans
og vísindalega starfsemi, svo er sagt frá honum sem forstöðumanni
prestaskólans 1847—66. Pá eru tveir innskotskaflar; lýsir sá fyrri
ritstjórn hans á Landstíðindunum og hluttöku hans í þjóðfundinum, en
hinn síðari er um Dr. Pétur á alþingi (1849—1885). fá er lýst
starfi hans sem biskups yfir íslandi 1866—89, og í sambandi við það
kemur svo kafli um guðfræðisbækur hans og alþýðurit, og seinast
stuttur kafli um heimislislíf biskups og æfilok. I viðaukum við bókina
eru svo prentuð ýms skjöl og skilríki, meðal annars eru þar ýms bréf
til Dr. Péturs frá Brynjólfi bróður hans og eitt frá Rosenörn innan-
ríkisráðherra, er verið hafði stiftamtmaður á íslandi, og eru þau bréf
afarmerkileg. Að lokum er skrá yfir rit biskups. Bókin er prýdd
með ýmsum myndum, þar á meðal fyrst og fremst af biskupi og síðari
konu hans, frú Sigríði Bogadóttur, og sýnishornum af rithönd hans.
Lesarinn fær að líta Pétur biskup frá mörgum hliðum, og höf. dregur
fram nægileg gögn til skilnings og skýringar þeim öllum, svo það er
hérumbil alstaðar hægt að sjá, hvort dómar höf. um Pétur biskup eru
á nægilegum rökum bygðir, og er það stór kostur.
Við skulum fyrst líta á Pétur biskup sem stjórnmálamann. Það
sést þar altaf, hvað hann er hagtækur og varkár. Hann er oft íhalds-
maður, en aldrei afturhaldsmaður. Það er nærri þvl eitthvað óíslenzkt