Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 44

Eimreiðin - 01.01.1909, Síða 44
44 vafa um þaö, að við sólaruppkomu muni garðurinn hans verða öldungis auður og ber. Tómlegur, auður og þögull muni vetur- inn ríkja þar, en hvorki fiðrildi né fuglasöngur. Hann gengur þar úti, þangað til í afturelding, og hann undrast, þegar hann sér mösurtrén í fullu laufskrúði. »Hvað«, segir hann við sjálfan sig, »hv;ið var það sem misti alt sumarskrúð sitt, fyrst það hefur ekki verið garðurinn? Hér vantar ekki svo mikið sem eitt einasta grasstrá. Skrambinn hafi það, líklega er það ég sjálfur, sem á að búa við vetur og kulda héðan af, en ekki garð- urinn minn. Pað er einsog alt lífsþrekið sé fiúið. Heimskinginn þinn gamli, þetta líður hjá, eins og alt annab! Tetta er að fárast um of út af stúlkunni þeirri arna.« IV. »það« hegöar sér býsna ótilhlýðilega núna, morguninn sem þau ætla að fara. Pessa tvo daga, sem þau hafa verið þar eftir dansleikinn, hefur »það« eiginlega mest verið örvandi, fjörgandi; en nú, þegar dúfan litla á að halda af stað, þegar »það« sér, að nú eru lokuð öll sund, að það engin áhrif geti haft á framtíð hennar, þá umbreytist það í dauðadrunga, í nákulda. Pað er engu líkara en að hún verði að draga steingjörðan líkama niður stigann og inn í stofuna, þar sem þau borða morg- unverð. Hún réttir þeim kalda, þunga steinhönd, þegar hún býður góðan daginn. Hún talar með stirðnaðri steintungu, brosir með hörðum steinvörum. fað er áreynsla, áreynsla. En getur nokkur maður varist því ab fagna, er hann hugsar til þess, hvernig alt var til lykta leitt morguninn þann, á þann hátt, er rótgrónar hugmyndir um heiður og trúnað krefjast. Undir borðum snýr Theódór námueigandi sér að dúfunni litlu, og segir henni frá því með hljómlausri rödd, að hann sé ráðinn í því að gjöra Márits að bústjóra á Laxá, »en sökum þess, að maðurinn er fremur óvanur búsýslu, fær hann ekki að taka stöðuna að sér, fyr en hann getur komið með húsfreyju þangað«, segir Theódór, og reynir að gjöra röddina eins eðlilega og honum er unt. »Hefur nú ungfrú dúfa litla alt til reiðu, svo að brúð- kaupið geti staðið í september?* Hún finnur, að hann horfir beint framan í hana. Hún veit,

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.